Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikmenn

8.3.2010

Kuszczak: Fer ef ég fæ ekki að vera númer eitt

Tomasz Kuszczak, varamarkvörður Manchester United, segir að hann fari fljótlega frá félaginu fái hann ekki aðalmarkvarðarstöðuna. Ákvörðun aðalmarkvarðarins Edwin van der Sar um að vera enn eitt árið hjá United bætir ekki stöðu Pólverjans.

„Ég veit ekki hversu mikið lengur ég verð á bekknum. Ég hef beðið í fjögur ár og liðið vel hér en kannski þarf ég að breyta til,“ sagði hinn 27 ára gamli Pólverji í samtali við The People.

„Mig langar til að vinna áfram með Sir Alex því hann er frábær stjóri. Við ætlum að reyna að leysa þetta því ég vil ekki vera lengur á bekknum. Ég hef alltaf sagt að ég breyti um telji ég mig hafa staðnað og sú stund er upp runnin. Mig langar til að vinna og ég tel mig hafa sannað að ég sé nógu góður til að verða aðalmarkvörður United.“

-Zunderman

 

Athugasemdir »

1

Hargo

8.3.2010 22:00
Fínt að hann sé með sjálfstraust og trúir á sjálfan sig en mér finnst hann ekki nógu góður til að vera aðalmarkvörður hjá United í framtíðinni. Hann þarf að bæta spyrnurnar sínar, hann er alls ekki góður að fá boltann í fæturna. Svo þarf hann að bæta úthlaupin sín, finnst hann of ragur og hikandi á línunni...svona eins og hann viti ekki alveg hvort hann eigi að rjúka út eða halda kyrru fyrir á línunni.

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista
 

 Manchester United

Stofnað: 1878

Heimvöllur: Old Trafford

Áhorfendur: 76312

Gælunafn:

The Red Devils

Rauðu Djöflarnir

Knattspyrnustjóri: Alex Ferguson

 

Premier League/Division One: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967, 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009
Runners-up: 1947, 1948, 1949, 1951, 1959, 1964, 1968, 1980, 1988, 1992, 1995, 1998, 2006
FA Cup winners: 1909, 1948, 1963, 1977, 1983, 1985, 1990, 1994, 1996, 1999, 2004
League Cup winners: 1992, 2006
European Cup winners: 1968, 1999, 2008
European Cup-winners Cup winners: 1991