Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikmenn

5.3.2010

Meiðslafréttir: Owen frá út leiktíðina

Michael Owen spilar ekki meira á þessari leiktíð vegna meiðslanna sem hann hlaut í leiknum gegn Aston Villa um síðustu helgi. Wayne Rooney er einnig tæpur fyrir leikinn gegn Wolves á morgun en Ferguson var mjög ósáttur með að hann hafi verið látinn spila í 85. mínútur með enska landsliðinu í vikunni. Hinsvegar eru góðar fréttir af Owen Hargreaves og Federico Macheda sem eru báðir við það að koma til baka eftir löng meiðsli.

 

Michael Owen meiddist aftan í læri í úrslitaleik Carling Cup bikarsins síðastliðin sunnudag og mun því ekki vera meira með á þessu tímabili. Þetta þýðir einnig að hann mun ekki eiga möguleika á að fara með Englendingum á heimsmeistaramótið í Suður-Afríku í sumar.

„Þetta er mikið áfall, hann spilar ekki meira á þessari leiktíð." sagði Ferguson.

„Því miður reyndist þetta vera alvarlegra en við héldum í fyrstu. Hann mun fara í aðgerð á mánudagsmorgun. Þetta er áfall fyrir leikmanninn og svekkjandi fréttir fyrir okkur líka. Hann hefur ekki misst úr æfingu á þessari leiktíð til þessa. Ég held að grasið á Wembley hafi líka spilað sinn þátt í þessu ásamt óheppni." sagði Ferguson.

Owen, sem hefur skorað 9 mörk á leiktíðinni fyrir United, var hinsvegar bjartsýnn á framhaldið þrátt fyrir meiðslin.

„Ég hef notið hverrar einustu mínútu hér á minni fyrstu leiktíð með Manchester United og hef þegar upplifað mörg minnisstæð augnablik. Ég er staðráðinn í að koma til baka í betra formi fyrir næstu leiktíð." sagði Owen bjartsýnn.

Ferguson gæti því átt í smá vandræðum með að velja framherjaparið fyrir leikinn gegn Wolves á morgun en Wayne Rooney er tæpur fyrir leikinn vegna verkja í hné. Ferguson var mjög ósáttur með að Rooney hafi þurft að spila 85. mínútur í vináttuleik Englendinga og Egypta í miðri viku á þungum Wembley vellinum. Ferguson er þá kominn í hóp knattspyrnustjóra eins og David Moyes og Arsene Wenger sem hafa báðir gagnrýnt grasið á Wembley sem þykir mjög laust í sér. United eiga gríðarlega mikilvægan heimaleik í meistaradeildinni næstkomandi miðvikudag þegar þeir fá AC Milan í heimsókn og vill Ferguson væntanlega hafa Rooney í toppstandi fyrir það einvígi.

Hinsvegar eru góðar fréttir af Owen Hargreaves sem hefur ekki spilað með United síðan í byrjun september 2008. Þessi sterki miðjumaður hefur verið í langri og strangri endurhæfingu vegna hnémeiðsla og hefur endurkomu hans verið frestað trekk í trekk. En nú er búist við því að Hargreaves spili sinn fyrsta knattspyrnuleik í langan tíma með varaliðinu í næstu viku. Varaliðsleikurinn verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni MUTV næstkomandi fimmtudag fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með hvernig Hargreaves vegnar í leiknum.

Einnig eru góðar fréttir af framherjanum unga Federico Macheda sem hefur verið frá undanfarið vegna meiðsla. Macheda mun byrja að æfa með aðalliðinu aftur í næstu viku og vill hann eflaust nýta tækifærið vel þar sem bæði Michael Owen og Danny Welbeck eru ekki lengur inn í myndinni, en sá síðarnefndi verður í láni út leiktíðina hjá Preston.

Ryan Giggs, Jonny Evans og Rio Ferdinand eru allir tæpir fyrir leikinn gegn Wolves á morgun en ættu örugglega að ná leiknum gegn AC Milan í næstu viku. Bakvörðurinn efnilegi Rafael da Silva er frá vegna meiðsla sem hann hlaut um síðustu helgi en ekki er búið að gefa út hvenær hann verður klár í slaginn aftur. John O‘Shea er sem fyrr frá vegna langtímameiðsla og spilar ekki fyrr en í fyrsta lagi í maímánuði ef allt gengur að óskum.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

Q-United

6.3.2010 09:50
Óheppilegt að Welbeck sé á láni (hjá Preston). En það er samt eitt jákvætt við þetta, það er að kannski fá fleiri ungir leikmenn að spila með aðalliðinu t.d. Joshua King, Cameron Stewart og fleiri. Diouf hefur staðið sig vel með vavraliðinu og hefur nú skorað með aðalliðinu þá finnst mér tímabært að hann fái fast sæti á bekknum.
2

Q-United

6.3.2010 09:52
afsakið stafsetningarvilluna vavraliðiðinu það átti að vera varaliðinu.
3

Aron

6.3.2010 12:31
hehe, já vona að Diouf fái fast sæti á bekknum. Hann er búinn að vera skora mikið fyrir varaliðið.
4

Dolli

6.3.2010 15:20
Það er bara svo, að Rooney hefði ekkert átt að spila þennan landsleik, mesta lagi annan hálfleikinn, því hann kenndi sér meins í hné í leiknum við Villa. En auðvitað skilur maður að leikmenn vilja spila fyrir sitt land, en þar sem um vináttu leiki er að ræða, þá verða leikmenn sjálfir og þjálfari að hugsa sinn gang áður en þeir demba sér í slaginn. Nú er liðið á seinni hluta deildarinnar, og félögin vilja hafa sína leikmenn heila, þar sem til að mynda er mikið í húfi hjá Utd, og þörf að nýta sér sýna sterkustu menn.
5

Sheringham

7.3.2010 14:20

Slúðurblöðin greina frá því í dag að John O´Shea gæti verið að koma með óvænt kombakk. Hélt að ég myndi ekki sjá hann fyrr en á næstu leiktíð en þetta eru góðar fréttir ef réttar eru. Wes Brown fór út af í hálfleik í gær og Neville kom inn á. Persónulega finnst mér O´Shea vera betri en þeir báðir í dag. 

Það er svo vonandi að við séum ekki að fara að lenda í einhverjum major meiðslapakka svona á síðustu metrunum, við erum víst búnir að fá nóg þessa leiktíðina!

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista
 

 Manchester United

Stofnað: 1878

Heimvöllur: Old Trafford

Áhorfendur: 76312

Gælunafn:

The Red Devils

Rauðu Djöflarnir

Knattspyrnustjóri: Alex Ferguson

 

Premier League/Division One: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967, 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009
Runners-up: 1947, 1948, 1949, 1951, 1959, 1964, 1968, 1980, 1988, 1992, 1995, 1998, 2006
FA Cup winners: 1909, 1948, 1963, 1977, 1983, 1985, 1990, 1994, 1996, 1999, 2004
League Cup winners: 1992, 2006
European Cup winners: 1968, 1999, 2008
European Cup-winners Cup winners: 1991