Leikmenn
1.3.2010
Owen og Rafael á meiðslalistann
Michael Owen og Rafael da Silva eru báðir komnir á meiðslalistann eftir úrslitaleikinn í deildarbikarnum gegn Aston Villa í gær. Owen meiddist aftan í læri og Rafael tognaði á kálfa. Talið er að báðir verði frá í nokkrar vikur. Wayne Rooney kvartaði einnig undan verkjum í hné eftir leikinn og er óvíst hvort hann spili með enska landsliðinu í miðri viku.
Michael Owen var í byrjunarliðinu gegn Aston Villa í fyrsta skipti í rúman mánuð. Owen komst á blað í leiknum en fór af leikvelli rétt fyrir leikhlé vegna meiðslanna og fyllti Wayne Rooney stöðu hans á vellinum.
„Michael hefur ekki fengið mikið að spila undanfarið og völlurinn var kannski ekki sem bestur fyrir hann." sagði Ferguson.
„Maður velur liðið áður en maður veit hvernig vallaraðstæðurnar eru og það hentar Michael ekki að spila á svona þungum velli. Það kostaði okkur."
„Fyrir utan það fannst mér hann einn af bestu leikmönnum okkar í fyrri hálfleik. Hann stóð sig mjög vel og skoraði jöfnunarmarkið sem kom okkur aftur inn í leikinn. Hann er góður í að hirða upp bolta í þessari stöðu, það er enginn betri en hann í því."
„Hann og Rafael munu fara í myndatöku. Ég held að Michael verði frá í nokkrar vikur." sagði Ferguson.
Wayne Rooney þarf að láta læknateymi United liðsins kíkja á hnéð á sér þar sem hann fann fyrir verkjum í leiknum gegn Aston Villa. Rooney vildi þó ekki fara af leikvelli og kláraði leikinn. Hann er hinsvegar tæpur fyrir landsleik Englendinga og Egypta næstkomandi miðvikudag.
„Hann hefur verið að kvarta undan hnénu í nokkrar vikur. Hann fékk högg á það um leið og hann kom inn á og ég hélt ég þyrfti að taka hann af leikvelli en hann vildi vera áfram inn á." sagði Ferguson.
„Ég held það sé ekki vandamál fyrir Wayne að spila í 90. mínútur en læknarnir eru núna að meta ástand hans. Ég veit ekki hvað við gerum í stöðunni."
Ferguson nefndi þó ekkert um að draga Wayne Rooney úr landsliðshópi Englendinga en talaði um hversu lélegt grasið væri á Wembley leikvanginum.
„Völlurinn var mjög mjúkur og leikmennirnir urðu fljótt þreyttir. Wembley er þreytandi völlur. Sem betur fer höfum við til næsta laugardags til að jafna okkur." sagði Ferguson, en Man Utd mæta Wolves á útivelli í deildinni um næstu helgi.
- Daði Már
Manchester United |
|


















andoo