Leikmenn
25.2.2010
Anderson frá út leiktíðina vegna meiðsla

Brasilíski miðjumaðurinn Anderson spilar ekki meira á þessari leiktíð eftir að hann greindist með slitið krossband. Anderson varð fyrir meiðslunum í 3-0 sigri United á West Ham á dögunum. Talið er að hann verði frá keppni í allt að 6 mánuði.
Anderson spilaði sinn fyrsta leik í rúman mánuð þegar hann var í byrjunarliðinu gegn West Ham síðastliðin þriðjudag. Hann þurfti að fara af leikvelli snemma í fyrri hálfleik eftir að hafa reynt að halda áfram. Þetta er mikið áfall fyrir leikmanninn sem hefur átt í erfiðleikum með að vinna sér inn fast sæti í aðalliðinu undanfarin misseri.
Anderson mun fara til Portúgal í aðgerð og var Ferguson mjög svekktur fyrir hönd leikmannsins.
„Hann verður frá það sem eftir lifir leiktíðar. Þetta er mikið áfall." sagði Ferguson.
„Hann hlakkaði mikið til að spila í leiknum á þriðjudaginn. Hann sýndi mikinn vilja og kraft og ætlaði sér að standa sig vel. Þetta er líka áfall fyrir liðið, sérstaklega þar sem styttist í seinni leikinn gegn AC Milan og Michael Carrick er í leikbanni."
„Þetta er mjög skrítið, yfirleitt þegar maður sér slitin krossbönd þá er það út af einhverju einföldu. Hann teygði sig í boltann og fann smell í hnénu. Við höfum metið ástand hans og hann þarf á aðgerð að halda. Hún mun fara fram í Portúgal eftir 2 vikur þegar bólgan hefur hjaðnað. Stundum höfum við sent leikmenn okkar til Dr. Steadman í Colarado. Í þessu tilelli þá er Anderson sáttur með skurðlækni sem hann hefur góða reynslu af í Portúgal."
„Hann mun vera frá í um 6 mánuði og vonandi verður hann tilbúinn fyrir næstu leiktíð." sagði Ferguson að lokum.
- Daði Már
Athugasemdir »
giggs
ottoman
Manchester United |
|














magg