Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikmenn

5.2.2010

Ferguson útskýrir ákvörðun sína

Sir Alex Ferguson kom fram í viðtali og útskýrði þá ákvörðun sína að taka Owen Hargreaves út úr meistaradeildarhópi liðsins. Einungis 25 leikmenn mega vera skráðir til leiks og vill Ferguson ekki taka sénsinn á að hafa ónothæfan leikmann í þeim hópi þegar liðið mætir AC Milan í 16-liða úrslitum keppninnar síðar í þessum mánuði.


Owen Hargreaves var upphaflega skráður til leiks í meistaradeildinni þar sem Ferguson vonaðist til þess í byrjun leiktíðar að hann gæti komið til baka og náð lokaleikjum riðlakeppninnar. Það gekk ekki eftir og vill Ferguson því ekki taka fleiri sénsa hvað þetta varðar.

„Batinn hjá Owen er hægur." viðurkenndi Ferguson.

„Það er komið eitt og hálft ár núna og við getum ekki sett neina dagsetningu á endurkomuna."

„En hann mun koma til baka. Hann gæti hjálpað okkur í deildinni á þessari leiktíð. Vonandi gerir hann það."

„Það eru mun fleiri leikir á dagskrá í deildinni heldur en í meistaradeildinni, ég þarf ekki að skrá hann sérstaklega til leiks í deildinni." sagði Ferguson.

Miðað við það sem á undan er gengið í endurhæfingu Hargreaves síðustu 18 mánuði þá er það mikið bjartsýnistal að skrá leikmanninn til leiks í þeirri von að hann gæti hugsanlega spilað úrslitaleikinn í meistaradeildinni ef United komast það langt.

En Ferguson var einungis að horfa til næsta verkefnis á dagskrá í þeirri keppni. Það er leikurinn gegn AC Milan á San Siro þann 16. febrúar næstkomandi. Ritchie de Laet var tekinn inn í meistaradeildarhópinn í stað Owen Hargreaves.

„Það er auðvitað frábær tilhugsun að ímynda sér það að vera aftur kominn í úrslitaleik meistaradeildarinnar og hafa Owen Hargreaves til taks."

„En við erum langt í frá komnir þangað. Við eigum leik við AC Milan eftir 10 daga og við verðum að sigra þann leik."

„Ég varð að velja á milli leikmanna og þetta var erfið ákvörðun. En þetta er rétt ákvörðun." sagði Ferguson að lokum.

- Daði Már

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista
 

 Manchester United

Stofnað: 1878

Heimvöllur: Old Trafford

Áhorfendur: 76312

Gælunafn:

The Red Devils

Rauðu Djöflarnir

Knattspyrnustjóri: Alex Ferguson

 

Premier League/Division One: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967, 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009
Runners-up: 1947, 1948, 1949, 1951, 1959, 1964, 1968, 1980, 1988, 1992, 1995, 1998, 2006
FA Cup winners: 1909, 1948, 1963, 1977, 1983, 1985, 1990, 1994, 1996, 1999, 2004
League Cup winners: 1992, 2006
European Cup winners: 1968, 1999, 2008
European Cup-winners Cup winners: 1991