Leikmenn
5.2.2010
United áfrýja aftur fyrir Ferdinand

Manchester United munu vitna í brot Javier Mascherano þegar þeir færa rök fyrir enn einni áfrýjun Rio Ferdinand. Hann tapaði áfrýjun sinni vegna brots sem hann framdi í leik United og Hull City þann 23. janúar. Forráðamenn United áfrýjuðu aftur og finnst ósamræmið í dómum enska knattspyrnusambandsins til háborinnar skammar.
Ferdinand var ákærður eftir að hafa slegið framherja Hull City, Craig Fagan, í hnakkann. Dómarinn sá ekki atvikið en það náðist á myndband. Ferdinand var í kjölfarið dæmdur í 3 leikja bann. Það bann var svo lengt í 4 leiki þar sem upphaflegri áfrýjun Ferdinand var vísað frá og lýsti enska knattspyrnusambandið áfrýjuninni sem hégómlegri tilraun.
Hefði Ferdinand samþykkt 3 leikja bannið þá hefði hann ekki getað spilað seinni undanúrslitaleikinn í Carling Cup bikarnum gegn Man City en United höfðu betur í þeim leik 3-1. Það hafði áhrif á þá staðreynd að enska knattspyrnusambandið ákvað að bæta einum leik við hið upphaflega 3 leikja bann þar sem þeim fannst áfrýjunin einungis þjóna þeim tilgangi að ná þessum leik.
Engu að síður hafa forráðamenn United ákveðið að áfrýja enn einu sinni þrátt fyrir möguleikann á því að bannið lengist enn frekar ef aganefndin staðfestir refsinguna. Ákvörðun þess efnis mun liggja fyrir næstkomandi mánudag.
United eru hinsvegar bjartsýnir á að þetta skili árangri, sérstaklega í ljósi þess að þeir eru með gögn sem þeir ætla að leggja fram við rökstuðning sinn. Það er myndbandsupptaka af Argentínumanninum Javier Mascherano slá framherja Leeds, Jermaine Beckford, í hnakkann í leik Liverpool og Leeds í september 2009. Þetta atvik var tekið til skoðunar hjá enska knattspyrnusambandinu þar sem dómari leiksins sá það ekki. Engu að síður komust þeir að þeirri niðurstöðu að ekki væri þörf á að setja Mascherano í bann fyrir brot sitt.
Hér má sjá myndband af broti Mascherano. Þegar það er borið saman við brot Ferdinand þá verður að viðurkennast að þau eru keimlík.
„Það sem veldur áhyggjum er orðið hégómlegt." sagði Ferguson en þannig lýsti enska knattspyrnusambandið ákvörðun United um að áfrýja upphaflega 3 leikja banninu.
„Tveir reyndustu dómararnir í úrvalsdeildinni eru Alan Wiley og Steve Bennett."
„Þeir heyra undir sama yfirmann og undir sama samband. Þegar þeir fara yfir myndbandsupptökurnar segir Bennett að í tilviki Rio sé um brot að ræða sem verðskuldi bann en í tilviki Mashcerano gegn Leeds segir Wiley nei, það sé ekki þörf á að refsa leikmanninum."
„Þegar þetta dæmi er sett í samhengi þá þykir okkur áfrýjun okkar alls ekki vera hégómleg." sagði Ferguson að lokum.
- Daði Már
Athugasemdir »
Dolli
Heiðar
siggi fat
Manchester United |
|


















noddy