Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikmenn

4.2.2010

Hargreaves ekki með í meistaradeild

Meiðslamartröð Owen Hargreaves er ekki lokið en hann var á dögunum skráður úr 25 manna meistaradeildarhópi Manchester United. Varnarmaðurinn Ritchie De Laet tók sæti hans í hópnum. Fyrr í vikunni hafði Sir Alex Ferguson vonast eftir því að Hargreaves yrði klár fyrir leikina gegn AC Milan en eitthvað virðist það hafa breyst.

 

Hargreaves hefur ekki spilað síðan í september 2008 eftir að hafa farið í aðgerðir á báðum hnjám til að bjarga ferli sínum. Hann kom til félagsins árið 2007 frá Bayern Munich fyrir um £17 milljónir punda.

Aðgerðin var framkvæmd á hinni heimsþekktu skurðstofu Steadman-Hawkins Clinic og vonuðust menn til þess að vandamál Hargreaves með hnén á sér yrðu þar með úr sögunni.

Síðan þá hefur þessi 29 ára leikmaður verið í stöðugri endurhæfingu en endurkomudagsetning hans í liðið hefur frestast allnokkrum sinnum. Hargreaves berst nú við það að afla sér sjálfstrausts í þeirri von um að koma til baka sem sami leikmaður og fyrir meiðslin.

Sir Alex Ferguson vonaðist eftir því að Hargreaves yrði klár fyrir leikinn gegn AC Milan í þarnæstu viku. En enn einu sinni mun endurkoma leikmannsins frestast um sinn.

Hargreaves var upphaflega í meistaradeildarhópi Manchester United í riðlakeppninni þar sem Ferguson vonaðist til þess að geta notað hann í lokaleikjum riðilsins. Þá var talið að Hargreaves yrði leikfær í lok nóvember en allt kom fyrir ekki.

En Ferguson er þolinmóður og sagði í viðtali að leikmaðurinn væri að æfa vel um þessar mundir.

„Owen er að gera mismunandi æfingar, bæði með varaliðinu og aðalliðinu. Hann æfir í tvo daga og hvílir svo í einn dag á milli."

„Þetta snýst um að hann nái upp sjálfstrausti sínu aftur og þegar hann hefur styrk til að æfa á hverjum degi þá er endurkomustund hans runnin upp." sagði Ferguson.

Hargreaves hefur einungis spilað 25 leiki fyrir United síðan hann kom til félagsins. Þrátt fyrir það spilaði hann þó stóra rullu í meistaradeildinni árið 2008. Hann hefur hinsvegar einungis spilað 3 leiki eftir sigurinn í úrslitaleiknum gegn Chelsea í Moskvu.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

ottoman

4.2.2010 18:11
er þetta ekki komið nóg? maðurinn fær aldrei breik frá meiðslum
2

Manutd maður

4.2.2010 18:19
bíddu hann átti að vera með í gær svo allt í einu nuna skrítið
3

bullshit

4.2.2010 20:26
Leikurinn gegn AC Milan er ekki í næstu viku heldur 16 feb. Annars er þetta mjög leiðinlegt þetta með Hargreaves.
4

MR Benz

4.2.2010 22:12

Hann er orðinn 29 ára og búinn að vera meiddur meira og minna í tvö ár. Ég kalla það gott ef hann verður ekki leystur undan samningi í sumar. Ferguson hlýtur að íhuga það ef hann kemst ekki af stað fljótlega. Hann átti að koma fyrst í des. svo í jan og núna kannski í feb. Þetta er sagan endalausa og ég hef því miður misst alla trú á að hann nái sér aftur.

5

Mills

4.2.2010 23:22
Gunnar Óli var nú lengur frá en hann átti að vera og það lengdist alltaf hjá honum, gefum Hargo sénsinn. Hann hefur spilað fáa leiki fyrit United en ekki átt einn einasta lélegan leik og varlykilmaður þegar að CL vannst 2008
6

Mills

4.2.2010 23:24
Afsakið prentvillurnar
7

Giggs

5.2.2010 08:59
Hann er að æfa eins og hann getur segir Ferguson, menn hafa líka sagt að þettað sé undir honum sjálfum komið, og að þettað sé orðið að mestu leitið sálrænt núna, þeir fótboltamenn sem hafa verið lengi frá, þeir tala allir um að þettað fari mest með geðið, og erfitt sé að rífa sig upp úr því. ég vona það besta fyrir Hargo, hann er/var sjúklega góður, flottar aukaspyrnur, frábært hvort sem hann spilar á miðjuni, og líka sem varnarmaður. please komdu sem allra fyrst meistari!

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista
 

 Manchester United

Stofnað: 1878

Heimvöllur: Old Trafford

Áhorfendur: 76312

Gælunafn:

The Red Devils

Rauðu Djöflarnir

Knattspyrnustjóri: Alex Ferguson

 

Premier League/Division One: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967, 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009
Runners-up: 1947, 1948, 1949, 1951, 1959, 1964, 1968, 1980, 1988, 1992, 1995, 1998, 2006
FA Cup winners: 1909, 1948, 1963, 1977, 1983, 1985, 1990, 1994, 1996, 1999, 2004
League Cup winners: 1992, 2006
European Cup winners: 1968, 1999, 2008
European Cup-winners Cup winners: 1991