Leikmenn
18.12.2009
Evra hlakkar til að mæta Beckham
Patrice Evra mun taka vel á móti David Beckham þegar hann snýr aftur á Old Trafford í febrúar en Evra ætlar sér engu að síður að slá þessa fyrrum stjörnu Man Utd og liðsfélaga hans í AC Milan úr keppninni. Endurkoma Beckham á Old Trafford með AC Milan mun án efa sitja ofarlega í hugum margra stuðningsmanna United á næstu vikum.
Þetta verður í fyrsta skipti sem Beckham mætir á Old Trafford til að spila með öðru félagsliði en Manchester United. Síðasti leikur hans í búningi rauðu djöflanna var árið 2003 en sama ár losaði Ferguson sig við hann þar sem hann var orðinn þreyttur á fjölmiðlafárinu í kringum Beckham og ást hans á að baða sig í sviðsljósinu utan vallar.
Þó að Ferguson og Beckham hafi sæst síðan þá og lagt til hliðar ágreininginn þá mun verða athyglisvert að fylgjast með þessum tveimur keppnismönnum mætast aftur. Beckham gaf það út í viðtali stuttu fyrir meistaradeildardráttinn að hans draumalið til að mæta væri Manchester United og tók fram að hann vonaðist til að fara alla leið í keppninni með AC Milan.
Evra kom ekki til United fyrr en tveimur og hálfu ári eftir brottför Beckham til Real Madrid en Evra er engu að síður mjög vel með á nótunum hvað varðar ímynd Beckham hjá félaginu og býst við að hann fái góðar viðtökur þegar hann snýr aftur á sinn gamla heimavöll. Evra mun að öllum líkindum fá það hlutverk að kljást við Beckham þar sem hann er hægrisinnaður miðjumaður og Evra vinstri bakvörður.
„Ég er mjög ánægður fyrir hönd David Beckham" sagði franski landsliðsbakvörðurinn.
„Hann gerði margt gott fyrir Manchester United á sínum tíma hjá félaginu og ég myndi líklega segja við hann: „Velkominn heim!"
„Ég hef hitt hann áður. Hann er mikill herramaður, hlý persóna og góður atvinnumaður. Það er án efa ástæðan fyrir því að Milan vildu fá hann aftur til sín. Ég hef miklar mætur á svona týpum af knattspyrnumönnum. Hann er enn einn besti hægrifótar-miðjumaður í heimi. En ég vona auðvitað að hann spili illa gegn okkur og ég ætla að sjá til þess að svo verði." sagði Evra.
Leikurinn mun einnig vera í fyrsta skipti sem Ronaldinho mætir Manchester United síðan hann hafnaði liðinu þegar Peter Kenyon, fyrrum stjórnarmaður United, hélt hann hefði verið búinn að ná samningum við Brasilíumanninn til að taka við af Beckham á hægri vængnum. Sá samningur var aldrei kláraður og Ronaldinho var kynntur sem leikmaður Barcelona daginn eftir viðræðurnar við United.
Það hefur einnig varla farið framhjá áhangendum United að sjöfaldir Evrópumeistarar AC Milan hafa samanlagt unnið United í öllum fjórum tveggja leikja rimmunum sem þessi lið hafa háð sín á milli í meistaradeildinni. Af þessum fjórum rimmum eru þrjár þeirra undanúrslitaleikir.
Síðasta viðureignin árið 2007 á San Siro fór 3-0 fyrir AC Milan og þýddi að United missti af því að mæta Liverpool í úrslitaleiknum. United hafði áður unnið Ítalana 3-2 á heimavelli en töpuðu samanlagt 5-3.
En Evra telur að þessi ósigur sem og ósigurinn gegn Barcelona í úrslitaleiknum í maí síðastliðnum muni gera United menn enn ákveðnari í því að mæta einbeittir til leiks.
„Þetta var pirrandi ár. Við spiluðum ekki vel í fyrri leiknum þó svo við höfum unnið hann 3-2. Ég var í banni í seinni leiknum og neyddist til að horfa á hann í sjónvarpinu. Það var hræðilegt að tapa þessu á þann hátt sem við gerðum en eftir leikinn höfðum við fengið dýrmæta reynslu í bankann. Árið eftir fórum við svo alla leið í keppninni og árið þar á eftir náðum við alla leið í úrslitaleikinn aftur þó við höfum ekki unnið hann. Nú munum við áfram nýta okkur þessa reynslu og gera það sem við getum til að komast áfram í 8-liða úrslitin." sagði Evra.
Beckham mun án efa vera í sviðsljósi fjölmiðla þegar kemur að leiknum. Öll frægu atvikin, allt frá frábærum mörkum þegar allt lék í lyndi yfir í fljúgandi takkaskó frá Ferguson, verða án efa rakin frá byrjun til enda.
„Það getur enginn sagt til um hvort að öll þessi athygli á Beckham muni hafa góð eða slæm áhrif á hann eða liðið í leiknum, það verður bara að koma í ljós. Þegar við mættum Barcelona var þetta alltaf sett upp sem Messi vs Ronaldo, við erum vanir þessu. Álagið er partur af okkur, ég hef meiri áhuga á að spila gegn liðinu AC Milan heldur en einstaklingnum David Beckham. „
„Það sem ég veit er að við erum með gott sjálfstraust og við stefnum á að fara alla leið í úrslitaleikinn á hverju ári, og þegar þangað er komið er takmarkið auðvitað að sigra." sagði Patrice Evra fullur tilhlökkunar en Evra hefur átt frábært tímabil fyrir United það sem af er.
- Daði Már
Athugasemdir »
Jói
ja verið ekki of bjartsýn.... Liðið er ekki svipur hjá sjón
Geta ekkert þessa dagana, flestir sigrar ManU á leiktíðinni ansi ósannfærandi. Enda ekki skrýtið miðað við alla meðalmennina í liðinu. Scholes er búinn á því, soldið síðan meiraðsegja.. á glæsta fortíð, eins og Ferguson sjálfur, sem er einnig á síðustu dropunum með þetta lið. Klúbbur af þessari stærðargráðu ætti að kaupa góða leikmenn....ekki leikmenn sem "gætu orðið góðir" einsog Hágöfgi Ferguson virðist vera hrifnastur af að gera. Hefur lítið með þessi meiðslavandræði að gera..það er engin afsökun, enda á klúbburinn að hafa betri menn til afleysinga.
Bud
Já hrægammarnir eru fljótir á stjá um leið og liðið misstígur sig. Fergie, maðurinn sem Jói segir vera á síðustu dropunum, hefur unnið deildina undanfarin 3 ár ásamt að komast í 2 úrslitaleiki í meistaradeild undanfarin 2 ár og vinna annan þeirra. Klárlega maður sem er á síðustu dropunum og vert er að losa sig við strax! Hversu margir sögðu þetta á árunum 2003-2005? Svo allt í einu komu titlarnir í röðum frá gamla sem átti að vera löngu búinn á því skv. þessum Football Manager spekingum.
Deildin er jafnari í ár, Chelsea mun einnig tapa stigum og missa þar af auki Drogba, Essien, Kalou og Mikel í janúar í Afríkukeppnina.
Ef að þessi klúbbur hefði aldrei keypt leikmenn "sem gætu orðið góðir" þá væru menn eins og Vidic, Evra, Ronaldo, Solskjær og margir fleiri sem hefðu aldrei litið dagsins ljós. Allt voru þetta lítil nöfn og ekki það frægir leikmenn þegar þeir komu til félagsins.
Vörnin var í dag samsett af varamarkverði, tveimur miðjumönnum (Fletcher, Carrick), einum reynslulitlum kjúklingi (De Laet) og vinstri bakverði (Evra). Það afsakar kannski ekki frammistöðuna en menn verða að setja þetta í samhengi. Held það væru ekki mörg lið sem gætu farið klakklaust í gegnum svona meiðslahrinu sem lendir öll á varnarlínunni og dreifist ekkert.
Ási
Kallinn
Kallinn
Manchester United |
|


















Alexander