Leikmenn
7.2.2012
Berbatov vill meiri spilatķma

Dimitar Berbatov hefur viðurkennt að hann vilji spila meira en framherjinn hefur verið fyrir aftan Rooney, Welbeck og Hernandez í goggunarröðinni hjá United á þessu tímabili. Hann var markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í fyrra en hefur fengið fá tækifæri á þessu tímabili.
Þessi 31 árs gamli Búlgari var orðaður við brottför frá United í janúarglugganum en ekkert gerðist í þeim efnum. Nú er talið líklegt að klásúla í samningi Berbatov virkjist sem þýðir að samningur hans framlengist sjálfkrafa um eitt ár.
Berbatov hefur einungis verið í byrjunarliðinu í fimm af síðustu 24 deildarleikjum United.
"Ég er leikmaður Manchester United, en sem stendur er ég ekki að spila eins marga leiki og ég vildi. Ég er ekki ánægður með að spila ekki. En ég get ekki kennt neinum um það, sérstaklega ekki í fjölmiðlum. Þegar ég hef eitthvað að segja þá tala ég beint við stjórann, ekki blöðin. Hann ákveður allt." sagði Berbatov.
Aðspurður út í framtíð sína sagði Berbatov búast við því að framlengingin á samningi hans taki gildi í mars.
"Ég veit ekki hversu lengi ég verð hjá Manchester United. Ég veit ekki betur en að samningurinn framlengist sjálfkrafa um eitt ár í mars. Ég veit ekki meira." sagði Berbatov að lokum.
- Daði Már
Athugasemdir »
ottoman
Frábær fótboltamaður..
Ótrúlegt að bæði Hernandez, sem getur ekki blautan (alveg sama þó hann hafi skorað gefins mark á móti Chelsea sem fór af Cech og inn) og Welbeck séu framar í goggunarröðinni.
goggi89
aa
ottoman
Veit ekki hverju ætlað "vinnuframlag" Welbecks skilar...
Þetta er bara fótbolti og Berbatov er miklu betri við þá iðju en hinir 2.
Veit ekki betur en hann hafi bæði skapað og skorað meira, með minnstan spilatíma!
Segir sig sjálft..
sss
DelPiero
KEANO
sheringham
Ferguson16
Sir Ryan
Giggsy
ottoman
Svona fyrst þú ert að fara út í þá sálma.... Hvaða varnarvinnu sýnir Hernandez? Að vera rangstæður? Er það varnarvinna? Hlaupa útum allt og gera samt ekki neitt?
Welbeck er auðvitað efnilegur ungur strákur sem hefur mikla hæfileika, en en staðan er nú bara þannig í dag að Berbatov er #2 á eftir Rooney.
Berbatov er bara betri fótboltamaður eins og staðan er í dag. Skorar meira, spilar meira, kann meira..
Frišrik
Mu-16
það er 100% ástæða fyrir þvi að ferguson spilar ekki berba,,,enginn af okkur veit hana,,,enn ef eg ætla að giska á eitthvað, þá er það útaf það er erfitt að hafa mann inná sem skilar engri varnarvinnu, það gerir öðrum mönnum erfiðara fyrir, attidutið hja berba er yfirleitt mjög lélegt.
Welbeck er einn af efnilegustu framherjum Englands og þarf sinn spiltíma og vinnuframlagið er mjög mikið hjá honum og oftar enn ekki þegar hann er með Rooney frammi, þá er hann mjög góður.
trúi ekki að menn séu búnir að gleyma Hernandez frá seinasta tímabili,,,var frábær fyrir okkur og markið hans á móti Chelsea undir lok seinasta tímabils nánast tryggði okkur titillinn... vissulega er hann buinn að vera frekar slakur i vetur,,, enn eg held að það sé bara búið að vera að keyra honum dáltið út, þar sem hann fékk nánast ekkert sumarfrí
Mephz
Berbatov skilar mun meiri varnarvinnu en Rooney, Welbeck og Chicharito til samans þegar hann er á vellinum. Veit ekki hversu oft maður hefur heyrt "and berbatov heads the ball away" eða eitthvað álíka en það telur á hundruðum sérstaklega á síðasta tímabili. Engann veginn ástæðan, hann æfir meira segja oft sem miðvörður hjá okkur þegar það eru meiðsli og hefur spilað fyrir okkur sem miðvörður fyrr á þessu tímabili.
Berbatov er betri á öllum sviðum fótboltans en Welbeck, líka hugarfar. Hann er með toppklassa hugarfar sem fótboltamaður, minni menn væru farnir að grenja um sölu núna, jafnvel farnir í janúar. Að spila Welbeck og Chicharito fram fyrir Berbatov nær engri átt, hlítur að vera eitthvað persónulegt sem þeim Ferguson og Berbatov fór á milli. Hljóta að hafa rifist eitthvað því Welbeck er ennþá drasl sem á ekki heima í byrjunarliðinu. Hvað þá Chicharito eins og hann er að spila á þessu tímabili.
jebb
jebb
Erlingur
Ég vil koma með mína skoðun inn í þetta, ég skil full vel að Berbatov,með fullri virðingu fyrir hans frábæru hæfileikum inná vellinum fái ekki mikin spilatíma. Hvað sem menn hér geta fundið að Hernandez og Welbeck, þá er það bara þannig að þeir henta leikstíl United miklu betur, og það hefur meira að segja Ferguson aðeins gefið í skyn. Hvað sagði Ferguson um Hernandez þegar hann sagði að þeir hefðu orðið að taka áhættu og settu Hernandez inná gegn Chelsea í stöðunni annað hvort 3-0 eð 3-1 fyrir heimamenn? Það kom strax órói á vörn Chelsea og það skapaðist hætta í kringum hann, þar af leiðandi opnaði Hernandez fyrir meira af plássi fyrir öðrum leikmönnum og er líka hættulegur á öxlunum á aftasta manni.
Ef hann hefði ekki skorað 3-3 markið gegn Chelsea? Á þá að segja manni að Berbatov hefði bara gert það í staðin? Berbatov hefur ekki þetta sem Hernandez hefur svo svakalega mikið, auga fyrir staðsettningum við markið, og hraða til að stinga aftasta mann af? :)
Hvað varðar Welbeck, þá veit ég ekki betur en að hann sé búinn að vera gera það ansi fínt í nær flestum stórleikjum United í vetur, þegar við þurfum á því að halda að framherjarnir okkar, (Fleiri en Rooney) stigi upp, og setji varnarmenn andstæðinganna undir mikla pressu.
Berbatov nennir nú bara stundum ekki að hreyfa sig inná vellinum, og það fer bara í taugarnar á manni, mér hefur nú heldur ekki fundist Berbatov vera neitt frábær í leikjunum sem hann hefur þó fengið að byrja í.
Hvað segir það um hann? Reynslan er til staðar, það er sagt um óreynda og unga menn, að þeir verði að grípa tækifærið þegar það gefst og þeir fá spilatíma.
Gildir eitthvað annað um Berbatov þegar samkeppnin er hörð um stöðurnar?
Það held ég varla. Fergie veit alveg upp á hár hvað hann er að gera, og sé Berbatov ósáttur, þá fer hann bara í sumar, og mér finnst hann ekkert ómissandi. Vill sjá nr7 og nr9 fara á einhver verðugari nöfn.
En GG MUFC.. :)
Mu-16
þarna sannaði mephz að hann hefur ekki hundsvit á fótbolta,,,skilar Berbatov meiri varnarvinnu enn Rooney, chicarito og welbeck til saman ?? ertu á englaryki eða ??
Johnny evans skilar álíka góðri sóknarvinnu og berbatov varnarvinnu
KG
KG
Giggsy
sss
Það er algerlega nýtt fyrir mér að mörk sem voru skoruð í fyrra séu ekki jafn mikilvæg og þau mörk sem hafa verið skoruð nú í ár eða hver skoraði þau.
Jakob G
sss
KG
Manchester United |
|

















Me