Leikmenn
26.1.2012
Rooney: Erum yfirleitt bestir á þessum tímapunkti
United á fyrir höndum erfiða og mikilvæga leiki á næstu dögum en Wayne Rooney segir að United liðið spili yfirleitt vel á þessum tímapunkti á tímabilinu og hann njóti þessara stórleikja í botn. Um síðustu helgi sigruðu United Arsenal á útivelli og um næstu helgi mæta þeir Liverpool á Anfield í FA bikarnum.
"Við njótum þessa tíma á leiktíðinni. Þegar við byrjum nýtt ár sjáum við ljós við enda ganganna. Hver leikur er mikilvægur og við viljum ekki vera að missa stig. En mér finnst við alltaf bestir á þessum tímapunkti og við sjáum glitta í titlana sem eru í boði. Þess vegna höldum við einbeitingu og oftar en ekki erum við á toppnum undir lokin." sagði Rooney.
Rooney sagði einnig að fyrst að United duttu út úr Carling Cup keppninni og fóru ekki í undanúrslitin þá hafi það þó haft þær jákvæðu afleiðingar í för með sér að létta á leikjaálaginu um þessar mundir. Evrópukeppnin hefst hinsvegar í næsta mánuði.
"Þetta hefur verið óvenjulegur tími að hafa bara einn leik á viku. Við náum að æfa vel og það hjálpar okkur fyrir næstu leiki." sagði Rooney.
United komu sér aftur á beinu brautina eftir að hafa tapað fyrir Newcastle og Blackburn í deildinni með sigrum gegn Man City í FA bikarnum og Arsenal í deildinni. Nú tekur við bikarleikur um helgina gegn Liverpool á Anfield. Í kjölfarið á því eru svo leikir gegn Stoke, Chelsea og Liverpool í deildinni á næstu 17 dögum.
"Þetta eru erfiðir leikir en þetta eru leikirnir sem þú vilt spila í. Næstu þrír til fjórir leikir verða spennandi. Við skiljum og vitum hvað við þurfum að gera. Við þurfum að undirbúa okkur á sem bestan hátt og vonandi náum við úrslitunum sem við þurfum." sagði Rooney.
- Daði Már
Athugasemdir »
HAE
ísak
Sir Ryan
KG
Þvílíkir aular!!! Ætlar einhver að mótmæla því núna að það vanti vinstri bakvörð??
Evra gersamlega drullaði upp á bak í seinna markinu og af hverju í helvítinu tekur rúmlega hálfa mínutu að taka eitt djöfuls innkast þegar 3 mínútur eru eftir og við marki undir. Ég er orðinn svo þreyttur á þessum gæja að það hálfa væri nóg. Honum veitir ekki af samkeppni um stöðuna og hvíld!!!!!
Ég var mjög smeykur við þennan leik en svo loks þegar nokkrar mínútur eru eftir og maður vogar sér að anda léttar og verða bjartsýnn á að ná jafntefli þá er drullað upp á hnakka með leti og einbeitingarleysi.
Sir Ryan
KG
Sammála þér. Þvílík skömm og mér persónulega finnst að þeir eigi að segja sig úr Evrópukeppni skítaliða og skammast sín. Þá verður kannski einhver von að við verðum ekki með 10+ leikmenn meidda allt helvítis tímabilið. Það eru 3 dagar eftir af glugganum og það vantar bakverði og miðjumann.
Þeir Liverpool menn sem ég hef talað við eru allir á því að Liverpool hafi verið miklu lakari í þessum leik. Sorgleg frammistaða!
Manchester United |
|


















KG
Hann nýtur nú ekki leiksins úr stúkunni eins og fréttir benda til. Ég vona að þessi meiðsli hans séu mindplay af hálfu united en hann er sagður ekki hafa getað æft í vikunni vegna meiðsla og sé mjög tæpur fyrir leikinn.
Ef Rooney verður ekki heldur með þá er ég mjög hræddur við þennan leik og sálfræði afleiðingarnar sem hann getur haft í för með sér. Vona það besta!
Btw. þessi meiðsli hjá liðinu eru orðin vægast sagt drulluþreytt!
GGMU