Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikmenn

25.1.2012

Verður Jones með gegn Liverpool?

Svo gæti farið svo að Phil Jones hristi af sér ökklameiðslin mun fyrr en áætlað var og er möguleiki á því að hann verði með í bikarleiknum gegn Liverpool um helgina. Búist var við því að Jones yrði frá í 3 vikur eftir að hann fór meiddur af leikvelli gegn Arsenal.

 

Eftir leikinn gegn Arsenal bjóst Sir Alex Ferguson við því að Jones yrði frá í nokkrar vikur og myndi missa af mikilvægum leikjum gegn Liverpool og Chelsea sem fram fara á næstunni. Hinsvegar hefur Mike Phelan, aðstoðarmaður Ferguson, gefið út að það sé möguleiki að Jones verði orðinn góður fyrir helgina og gæti mögulega tekið þátt í leiknum gegn Liverpool.

"Karakterinn hjá Phil er mjög góður. Hann var vonsvikinn með að undanfarnar vikur virðist hann hafa verið hálf haltrandi um völlinn. En hann nær sér yfirleitt mjög fljótt svo við erum bjartsýnir að hann gæti tekið upp á því aftur í þessu tilviki." sagði Phelan.

United hafa lent í miklum meiðslum á leiktíðinni. Fyrirliðinn Nemanja Vidic verður ekki meira með á leiktíðinni sem og miðjumaðurinn Darren Fletcher. Einnig hefur Tom Cleverley verið frá síðan í september, Ashley Young síðan í kringum jólin og Michael Owen er á hægri bataleið eftir að hafa tognað í læri. Nani fór frá Emirates leikvanginum um síðustu helgi með umbúðir á fætinum. Wayne Rooney og Michael Carrick fengu einnig högg í leiknum gegn Arsenal og eru smávægilega meiddir. Rio Ferdinand er enn og aftur að ströggla með bakmeiðsli og missti af leiknum gegn Arsenal og óvíst er hvort hann taki þátt í leiknum gegn Liverpool.

"Við erum ekki í besta standi með liðshópinn sem við förum með í næstu fjóra til fimm leiki. Hinsvegar getum við alltaf stólað á reynsluna og þau gæði sem við höfum hjá þessu félagi. Við verðum að gera það á næstu vikum." sagði Phelan.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

H.H.R

25.1.2012 20:31
..,_
2

Gylfi

26.1.2012 22:28
hahah hverju haldiði að það skipti. hann verður étinn einsog allir hinir leikmenn man utd. Enda á unitd ekki eftir að standast liverpool snúninginn!
3

siggi

27.1.2012 00:32
jamm jamm Gylfi liverpool eru langbestir í heiminum. Það er bara alltaf öðrum að kenna að þeir hafi ekki unnið premier league. Ef það er ekki dómarinn þá er það FA eða SAF. Það er aldrei því um að kenna að þið eruð einfaldlega ekki nógu góðir í fótbolta, með lélega stjóra, lélega leikmenn og tapið á fullu. Þið eruð orðnir svo lélegir að þið getið ekki einu sinni pirrað mann lengur, manni finnst bara gaman að lið á borð við Stoke og Sunderland skuli vera að rífa kjaft, og maður fái að monta sig aðeins yfir því að vera sigursælasta lið ensku deildarinnar.
4

KG

27.1.2012 09:41

Hahaha góður Siggi.

@Gylfi. Þá segir maður Touché!!!

5

Helgi Reim

27.1.2012 20:42
Gylfi vertu á kop.is méð þitt skítlega eðli..

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista
 

 Manchester United

Stofnað: 1878

Heimvöllur: Old Trafford

Áhorfendur: 76312

Gælunafn:

The Red Devils

Rauðu Djöflarnir

Knattspyrnustjóri: Alex Ferguson

 

Premier League/Division One: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967, 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009, 2011
Runners-up: 1947, 1948, 1949, 1951, 1959, 1964, 1968, 1980, 1988, 1992, 1995, 1998, 2006
FA Cup winners: 1909, 1948, 1963, 1977, 1983, 1985, 1990, 1994, 1996, 1999, 2004
League Cup winners: 1992, 2006
European Cup winners: 1968, 1999, 2008
European Cup-winners Cup winners: 1991