Leikmenn
22.1.2012
Jones frá í nokkrar vikur

Þó að Sir Alex Ferguson hafi verið hæstánægður með að fara heim með þrjú stig frá Emirates Stadium í dag, þá fylgdi því fórnarkostnaður í formi enn fleiri meiðsla. Phil Jones meiddist á ökkla og verður frá í nokkrar vikur. Rooney, Nani, Carrick og Evra urðu einnig fyrir hnjaski en eru þó ekki alvarlega meiddir.
United ferðuðust til London í dag án Rio Ferdinand sem var frá vegna bakmeiðsla sem tóku sig upp aftur skömmu fyrir leikinn. United eru einnig án Anderson, Tom Cleverley, Ashley Young, Michael Owen, Darren Fletcher og Nemanja Vidic.
Phil Jones missti af leiknum gegn Bolton um síðustu helgi en var í byrjunarliðinu gegn Arsenal í dag. Hann þurfti að fara af leikvelli eftir rúmar fimmtán mínútur eftir að hafa snúið illa upp á ökklann á sér.
"Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir okkur. Ég held að Jones verði frá í nokkrar vikur, þetta eru liðböndin í ökklanum. Carrick fann fyrir meiðslum aftan í læri taka sig upp aftur og hann varð bara að halda sig á miðjum vellinum eftir það." sagði Ferguson.
Ferguson útskýrði einnig þá ákvörðun að taka varamanninn Rafael af velli þegar 14. mínútur voru eftir af leiknum, en Rafael hafði komið inn á fyrir Phil Jones í fyrri hálfleik.
"Rafa var ekki mjög ánægður með skiptinguna og ég skil það. Hann er hugrakkur og ákveðinn í að vinna boltann en hann hafði nú þegar fengið áminningu og mér fannst áhorfendurnir vera farnir að hafa áhrif. Ef hann hefði farið í aðra 50/50 tæklingu um boltann hefði hann líklega verið í vandræðum. Mike Dean hefur áður rekið hann af velli og mér fannst skynsamlegra að fá reynsluna hjá Scholes og Park inn á völlinn til að klára leikinn." sagði Ferguson.
- Daði Már
Athugasemdir »
sheringham
Sir
KG
http://www.physioroom.com/news/english_premier_league/epl_injury_table.php
Fletcher
Jones Ferdinand Vidic De Laet
Nani Cleverley Anderson Young
Bebe Owen
Mér heyrist að Rooney, Carrick og Evra séu ekki illa særðir þannig að þeir gætu mögulega verið varamenn. Spurning líka um að hafa De Gea í markinu fram að aðgerð. Þá er þetta bara hið þokkalegasta lið. :)
salvar
carroll
Nesinn
Bjössmann
Fannar
Fannar
siggi
Manchester United |
|


















mmm