Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikmenn

17.5.2012

Owen á förum frá United

Framherjinn Michael Owen hefur staðfest að hann sé á förum frá United eftir að félagið ákvað að bjóða honum ekki nýjan samning. Owen hefur ekki spilað leik með United síðan í nóvember í fyrra vegna meiðsla.

16.5.2012

Evra: Erfiðasta leiktíðin á ferlinum

Patrice Evra segir að yfirstandandi tímabil með United hafi verið sitt erfiðasta frá upphafi. Hann missti bróður sinn í október í fyrra ásamt því að lenda í löngum réttarhöldum vegna kynþáttaníðs Luis Suarez í hans garð.

16.5.2012

De Laet og James seldir til Leicester

Leicester City hafa fest kaup á Ritchie De Laet og Matthew James frá Manchester United. Kaupverðið er ekki gefið upp en knattspyrnustjóri Leicester, Nigel Pearson, er himinlifandi með kaupin.

15.5.2012

Gill: Fjármagnið er til staðar

Stjórnarformaðurinn David Gill segir að Manchester United hafi aðgang að fjármagni til að styrkja liðið fyrir næstkomandi tímabil. Sjálfur hefur Ferguson sagt að hann vilji fá 2-3 leikmenn í liðshópinn.

14.5.2012

City biðjast afsökunar á hegðun Tevez

Carlos Tevez sást halda á skilti sem á stóð "R.I.P. Fergie" í skrúðgöngu Man City í dag, en liðið var að fagna enska úrvalsdeildartitlinum. Forráðamenn City liðsins voru fljótir að senda frá sér afsökunarbeiðni þar sem hegðun leikmannsins er hörmuð.

14.5.2012

Valencia valinn bestur

Kantmaðurinn Antonio Valencia var valinn besti leikmaður tímabilsins hjá Manchester United tvívegis nú á dögunum. Hann fékk hin eftirsóttu Sir Matt Busby verðlaun, auk þess sem hann var valinn leikmaður ársins af leikmönnum félagsins

Skráðu þig á póstlista
 

 Manchester United

Stofnað: 1878

Heimvöllur: Old Trafford

Áhorfendur: 76312

Gælunafn:

The Red Devils

Rauðu Djöflarnir

Knattspyrnustjóri: Alex Ferguson

 

Premier League/Division One: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967, 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009, 2011
Runners-up: 1947, 1948, 1949, 1951, 1959, 1964, 1968, 1980, 1988, 1992, 1995, 1998, 2006
FA Cup winners: 1909, 1948, 1963, 1977, 1983, 1985, 1990, 1994, 1996, 1999, 2004
League Cup winners: 1992, 2006
European Cup winners: 1968, 1999, 2008
European Cup-winners Cup winners: 1991