Beint á leiðarkerfi vefsins

Leikmenn

29.7.2010

Hernandez og Macheda ekki lánaðir út

Sir Alex Ferguson hefur staðfest að hann ætli ekki að senda þá Javier Hernandez og Federico Macheda á lánssamning á komandi tímabili. Það gefur þó líklega til kynna að Welbeck og Cleverley séu þeim mun líklegri til að yfirgefa félagið tímabundið.

28.7.2010

Nýjar leikmannareglur gætu skapað vandamál

Nýjar reglur taka gildi næstu leiktíð um stærð leikmannahópa í ensku úrvalsdeildinni. Ferguson gæti neyðst til að skilja stór nöfn fyrir utan hópinn en tilkynna þarf leikmannalistann fyrir 1. september næstkomandi. Owen Hargreaves er í mestri hættu með að vera skilinn útundan.

27.7.2010

Hernandez mættur til æfinga

Javier Hernandez er mættur í æfingaferð United í Bandaríkjunum og mun að öllum líkindum taka þátt í leiknum annað kvöld gegn MLS All-Stars í Houston. Eftir að hafa heimsótt Texas Children spítalann með liðinu í gær þakkaði Ferguson jafnframt útsendarateymi United fyrir að hafa sparað félaginu milljónir með því að finna drenginn áður en HM hófst í sumar.

27.7.2010

Gill: Við erum tilbúnir í stór kaup

Stjórnarformaðurinn David Gill segir að United séu tilbúnir til að gera ein stór kaup áður en félagsskiptaglugginn lokast í lok ágúst. Hann ítrekar enn einu sinni að peningarnir séu til staðar á Old Trafford.

27.7.2010

Van der Sar: Hungrið er enn til staðar

Markvörðurinn Edwin van der Sar segist ennþá vera hungraður í titla fyrir komandi tímabil þrátt fyrir að vera elsti leikmaður liðsins. Hann nýtur þess enn að leggja hart að sér á æfingum til að tryggja það að vera valinn í byrjunarliðið fyrir næsta leik.

25.7.2010

Meiðslafréttir: Ferdinand frá í 6 vikur

Rio Ferdinand mun missa af byrjun tímabilsins vegna meiðsla. Sir Alex Ferguson hefur staðfest þessar fregnir. Búist er við því að Ferdinand verði klár í byrjun september.

Skráðu þig á póstlista
 

 Manchester United

Stofnað: 1878

Heimvöllur: Old Trafford

Áhorfendur: 76312

Gælunafn:

The Red Devils

Rauðu Djöflarnir

Knattspyrnustjóri: Alex Ferguson

 

Premier League/Division One: 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965, 1967, 1993, 1994, 1996, 1997, 1999, 2000, 2001, 2003, 2007, 2008, 2009
Runners-up: 1947, 1948, 1949, 1951, 1959, 1964, 1968, 1980, 1988, 1992, 1995, 1998, 2006
FA Cup winners: 1909, 1948, 1963, 1977, 1983, 1985, 1990, 1994, 1996, 1999, 2004
League Cup winners: 1992, 2006
European Cup winners: 1968, 1999, 2008
European Cup-winners Cup winners: 1991