AÐALFUNDARGERÐ 2009
Aðalfundur stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi.
Haldinn 9. Júní 2009 í sal félagsheimilis Sjálfstæðismanna í Mjódd, Álfabakka 14a.
Mættir voru 25 fundargestir.
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Fundarstjóri síðasta aðalfundar, Ingvi, klappaður upp og samþykktur.
Ritari fundarins var Sigurður Hlöðversson.
2. Skýrsla stjórnar. Steinn formaður stiklaði á stóru í starfi vetrarins og fór vel yfir málin. Í loks skýrslu formanns minntist Steinn á og kynnti hátíðarfána félagsins sem blasti við fundargestum. Var hátíðarfáninn útbúinn eftir góðar ábendingar félagsmanna síðustu ár en margir hafa óskað eftir að hafa aðgang að slíkum hátíðarfána við stórafmæli, stórviðburði og jarðarfarir. Verður fáninn aðgengilegur félagsmönnum til afnota og má finna fljótlega upplýsingar um fánann inn á vefsíðu félagsins - manutd.is
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
Hafsteinn Valson gjaldkeri félagsins renndi yfir ársreikninginn og kynnti sérstaklega nýtt met okkar en það eru 2064 greiðandi félagar en aldrei áður hafa jafn margir greitt árgjald í klúbbinn.
Hafsteinn bauð upp á umræður um reikningana en engar athugasemdir komu fram og voru reikningar félagsins samþykktir einróma.
4. Lagabreytingar. Engar.
5. Kosning stjórnarmanna. Í framboði á fundinum voru tveir í aðalstjórn og einn varamaður. Embætti Símons Sverrissonar, Jóhanns Sævarssonar og Hafsteins Valssonar voru til framboðs. Hafsteinn og Jóhann buðu krafta sína áfram til starfa fyrir félagið og þar sem ekkert mótframboð barst voru þeir sjálfkjörnir undir lófataki fundarins.
Símon Sverrisson gaf ekki kost á sér til frekari starfa og voru honum þökkuð góð störf fyrir klúbbinn með lófataki. Óskað var eftir framboðum og komu fram þrír aðilar sem höfðu áhuga á embættinu, þeir Hans Hentinen, Auðunn Atli og Sigurður Sigurbjörnsson. Gengið var til kosninga og annar ritari fenginn til að telja atkvæði með fundarritara.
Atkvæði féllu þannig :
Hans 9 atkvæði
Auðunn Atli 9 atkvæði
Sigurður 7
Þar sem tveir aðilar voru jafnir ákvað fundarstjóri að kosið yrði aftur á milli þeirra tveggja Hans og Auðuns Atla.
Atkvæði í seinni umferð fóru þannig:
Hans 9 atkvæði
Auðunn Atli 16 atkvæði.
Auðunn Atli er því nýr maður í stjórn stuðningsmannaklúbbsins.
Kosið var einnig um skoðunarmann og kom ekkert mótframboð á móti sitjandi skoðunarmanni og hann því sjálfkjörin aftur.
6 Önnur mál.
Upp kom spurning um bók sem margir félagsmenn greiddu fyrir á sínum tíma og fékk fundurinn svör við hvernig því máli væri háttað. Sú bók var aldrei og hefur aldrei verið á vegum klúbbsins heldur eingöngu á vegum fyrirtækis sem heitir Design.is og félögum sem greiddu fyrir bókina bent á að hafa samband við forsvarsmenn þess félags.
Spurt var hvort ekki ætti að kjósa um félagsgjöldin og stjórnin var með þá tillögu um að halda þeim óbreyttum í krónum 3.000 og það var samþykkt.
Tillaga úr sal til stjórnar að skoða og beita sér fyrir því að gera eitthvað sérstaklega fyrir yngri félaga klúbbsins, annað hvort í formi að búa til barna- og unglingagjald eða senda sérstaka gjöf aðeins til þeirra sem eru undir 16 ára. Stjórnin tók þessu vel og eftir góðar umræður var ákveðið að þetta máli yrði tekið upp á stjórnarfundi fyrir næstu leiktíð og skoðað rækilega.
Fundurinn fjaraði svo rólega út undir umræðum um ýmis málefni sem ekki þarf að nefna hér.
Fundarstjóri sagði fundi slitið kl. 21.13.
Fyrir hönd stuðningsmannaklúbbsins,
Sigurður Hlöðversson
Fundarritari














