Beint á leiðarkerfi vefsins

AÐALFUNDARGERÐ 2008

 

Fundur haldinn 27.05.08 í sal Sjálfstæðismanna í Álfabakka.

Fundur settur stundvíslega kl. 20.
Byrjað var á að velja ritara og fundarstjóra og til verksins voru valdir Sigurður Hlöðversson sem ritaði fundinn og Yngvi Örn Stefánsson var valinn til fundarstjórnar.

Núverandi stjórn var beðin um að kynna sig fyrir fundinum.

Steinn Ólason formaður tók svo til við að lesa skýrslu formanns. Í ræðu sinni vék hann að málum eins og að klúbbfélögum hafi fjölgað á skömmum tíma úr 1100 í 1900 virka félaga í lok þessa tímabils. Stefnt er á að stækka klúbbinn enn frekar.
Steinn minntist á að stjórnin hafi hittst reglulega og haldið góða fundarsókn. Steinn sagði frá samstarfinu við Úrval Útsýn í vetur sem hefur gengið vel og að klúbburinn ætti 52 ársmiða + 2 miða sem eru á nöfnum Steins og Rúnars en ÚÚ hefur höndlað með þessa miða í vetur. Sótt hefur verið um endurnýjun á þessum miðum og óskað eftir fjölgun.  Steinn hvatti menn til að skrá sig líka í stuðningsmannaklúbb móðurfélagsins á Old Trafford sem heitir OneUnited, en þeim mun fleiri Íslendingar sem eru í honum, því meiri líkur á fjölgun ársmiða.
Steinn talaði um boðsferð tveggja fatlaðra stuðningsmanna í vetur á Old Trafford sem gekk vonum framar og hefur móðurklúbburinn lofað okkur 4 miðum á næsta leiktímabili og er það von stjórnarinnar að hægt verði að nýta þá miða til handa fötluðum klúbbfélögum og finna kostendur sem geta aðstoðað okkur að greiða götu þeirra alla leið á leikvang draumanna.
"Heimavallamálið" bar á góma og núna erum við í samstarfi við Players. Ný stjórn mun taka upp það mál fyrir næstu leiktíð og kynna það betur á heimasíðunni.
Ákveðið hefur verið að flytja áralöng viðskipti klúbbsins frá Landsbankanum og yfir til Kaupþings. Það fyrsta sem klúbbfélagar verða varir við er að ársgjald næsta tímabils kemur inn í netbanka félagsmanna sem valgreiðsla. Steinn leggur til fyrir hönd stjórnar að árgjaldið hækki ekki og verði áfram kr. 2500.

Hafsteinn Valsson gjaldkeri kynnti næst ársreikning félagsins. Nokkrar umræður áttu sér stað um nokkra liði reikningsins og má þar nefna sölu á styrktartreyjum frá Henson, gjaldi fyrir posa, símreikning og ársmiðamála klúbbsins. Eftir umfjöllun um ársreikninginn var hann lagður til samþykktar fyrir fundinum og var samþykktur samhljóða.

Lagabreytingar voru engar.

Kosning stjórnarmanna sem lokið hafa tveggja ára setu var næst á dagskrá skv lögum félagsins. Kosið var um formann, 2 aðalmenn í stjórn og einn varamann. Steinn Ólason gaf kost á sér áfram til formanns og þar sem ekkert mótframboð kom var Steinn sjálfkjörin undir lófataki fundarins. Sigurður Hlöðversson og Rúnar Ívarsson buðu sig áfram til setu í stjórn sem aðalmenn og þar sem mótframboð var ekkert voru þeir báðir sjálfkjörnir undir lófataki fundarins.
Sigurður Sigurbjörnsson bauð sig fram til endurkjörs til varamanns í stjórn. Þrjú mótframboð komu og þurfti að kjósa á milli þeirra fjögurra. Þeir sem buðu sig fram voru Pétur Björnsson, Björn Ingólfsson og Róbert Rúnarsson. Voru þeir beðnir að kynna sín framboð og því næst var gengið til kosninga. Tveir almennir fundargestir voru fengnir til að lesa upp atkvæðin ásamt Rúnari Ívarssyni. Var gengið til kosninga og féllu atkvæði þannig:
Björn - 6 atkvæði
Sigurður - 11 atkvæði
Pétur - 14 atkvæði
Róbert - 4 atkvæði

Pétur Björnsson hlaut því kosningu til varmanns og tekur við því sæti af Sigurði Sigurbjörnssyni.

Önnur mál.
Umræður voru um heimavöllinn Players og mun stjórnin skoða þau mál betur ásamt því að skoða hvað hægt er að gera fyrir klúbbfélaga á landsbyggðinni.
Björn Ingólfsson lagði til fyrir fundinn og óskaði eftir atkvæðagreiðslu um að hækka árgjald klúbbsins í kr. 3.000, í ljósi þess að miklar hækkanir í aðföngum og þjónustu hefur hækkað mikið á síðustu mánuðum og að gjaldið hefur verið óhreyft í 3 ár. Fundarstjóri bar upp þessa tillögu fyrir fundinn sem var samþykkt og verður því ársgjaldið leiktímabilið 2008 - 2009 kr. 3000.
Umræða skapaðist um verðlagningu Úrval Útsýn á hópferðum á Old Trafford. Björn Ingólfsson taldi sig vita að ÚÚ væri að græða alltof mikið á þessum ferðum en aðrir voru mjög ósammála. Steinn upplýsti fundinn um að nokkrir aðilar hefðu sett sig í samband við stjórnina um að annast þessi miðamál fyrir okkur og nýkjörin stjórn myndi skoða þau mál gaumgæfilega núna á næstu vikum.
Það kom hugmynd úr sal að skoða það að semja við olíufélag um að gefa út sérstakt Man United bensínkort þannig að af hverjum lítra sem fólk kaupir safnaðist lítil upphæð inn á reikning klúbbsins.
Talað var um að halda árshátíð klúbbsins og benti Björn Ingólfsson á það að erkifjendur okkar í Liverpool klúbbnum væru með ágætis fyrirmynd á slíkum uppákomum og mætti jafnvel skipta þessu upp í eina fyrir börn og eina fyrir fullorðna. Stjórnin skoðar þetta mál á næstu leiktíð.
Lilja, eiginkona formanns, nefndi hvort ekki væri rétt að endurskoða lög klúbbsins fyrir næsta aðalfund og breyta þeim í þá átt að klúbbfélagar á landsbyggðinni gætu kosið með póstkosningu á aðalfundi. Tekið var vel í þessa fyrirspurn og þetta mál skoðað næsta vetur og komið með tillögur til úrbóta.
Stjórnarmönnum var bent á að safna mætti fjölmörgum nýjum félögum með því að senda 2-3 stjórnarmenn markvisst næsta vetur út á land og auglýsa fyrirfram eða fyrir leik að tekið væri við nýjum félögum.

Að lokum bar fundarstjóri upp til samþykktar fundinn í heild og var hann samþykktur með lófataki sem löglegur fundur enda til hans boðað með löglegum hætti.

Sigurður Hlöðversson ritaði þennan fund


Skráðu þig á póstlista