Fréttir frá klúbbnum
2.9.2010
Skírteinin 2010/2011, glæsileg gjöf og ferð á Bretlandsslaginn

Í næstu viku sendum við til þeirra sem hafa greitt árgjaldið í klúbbinn ársskírteini tímabilsins en það þarf að sýna það þegar félagar vilja nýta sér tilboð af matseðlinum á SPOT, heimavelli stuðningsmanna, eða þegar er verið að kaupa sér vörur í Jóa Útherja og fleira.
Með skírteininu fylgir stór liðsmynd af Manchester United, hópnum í vetur ásamt því að haustgjöf til félagsmanna verður í sama pakka sem er glæsileg.
Hvetjum þá sem ekki hafa greitt að gera það sem fyrst, í netbankanum þínum á að vera valgreiðsla. Um leið og hún er greidd sendum við þér þínar gjafir. Ef þú ert ekki með valgreiðslu getur þú sent email á manutd@manutd.is með upplýsingum um fullt nafn, kennitala og sími og við setjum inn valgreiðsluna.
Meistaradeild Evrópu
Man.Utd - Glasgow Rangers 14-15 september
Flug
14. sept FI 436 KEF MAN 08:00 11:35
15. sept FI 436 MAN KEF 12:35 15:40 (millilent í Glasgow á heimleiðinni)
Gisting
Premier Travel Inn
Bishopgate
7-11 Lower Mosley street
Manchester M2 3DW
Verð: 64.500 krónur á mann í tvíbýli
innifalið: flug, skattar, gisting í eina nótt, miði á leikinn
Eingöngu hægt að bóka með því að senda email á ludvik@vita.is
















