Fréttir frá klúbbnum
15.7.2010
Ferðir á stórleikina gegn Liverpool og Arsenal

Á þriðjudaginn 20. júlí mun VITA Sport, í samstarfi við Manchester United klúbbinn á Íslandi, hefja sölu á ferðum á heimaleiki United gegn Liverpool annars vegar og gegn Arsenal hins vegar.
Rétt er að árétta að eingöngu meðlimir í klúbbnum njóta forgangs við kaup á þessum ferðum. Gera má ráð fyrir mikilli eftirspurn eftir þessum ferðum, það er því öruggt mál að ferðin mun seljast hratt upp og þá gildir forgangur meðlima klúbbsins ofar öllum öðrum.
Ferðirnar verða bókanlegar á heimasíðu vita www.vita.is frá klukkan 11:00 næsta þriðjudag.
Þar sem ekki er mögulegt að hafa síu í bókunarvélinni sem aðgreinir fólk eftir því hvort það eru meðlimir í Utd klúbbnum eða ekki. Þegar fólk hefur bókað, verður farið yfir meðlimaskrá klúbbsins til að sjá hvort viðkomandi aðilar séu ekki örugglega meðlimir í klúbbnum.
Sé svo ekki er bókunin ógild.
Einnig er mikilvægt að allir geri sér grein fyrir því að allir sem fara í ferðina verða að vera meðlimir í klúbbnum, ekki nægir að einn í hverri bókun sé meðlimur.
Ástæða þess að svo strangir skilmálir eru við bókun í ferðina er að eftirspurnin er gríðarleg og miðarnir á völlinn í eigu stuðningsmannaklúbbsins sjálfs og því eðlileg krafa að meðlimir klúbbsins njóti forgangs. Ekki verður hægt að bóka þessa ferð í gegnum síma eða með því að senda tölvupóst fyrr miðvikudaginn 21. júlí, sem þýðir að sjálfsögðu að þá eru talsverðar líkur á að ferðin sé þá þegar uppseld.
Upplýsingar um ferðirnar
Flogið er í beinu áætlunarflugi með Icelandair til Manchetser (millilent í Glasgow á heimleiðinni)
Gist er á Novotel, 4 stjörnu hóteli í miðborg Manchester
Man.Utd - Liverpool 18. - 21. september og 19. - 22. september
Man.Utd - Arsenal 10. - 13. desember
Verð. 92.000 kr. á mann í tvíbýli
116.000 kr. per mann í einbýli
Innifalið í verði: flug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði, miði á leikinn, rútur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn.
ATH: Hægt er að nota vildarpunkta til að greiða fyrir 10.000 kr. af virði ferðarinnar, til þess þarf að nota 15.000 vildarpunkta (ath. eingöngu hægt að nota 15.000 punkta, hvorki fleiri né færri.)
















