Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir frá klúbbnum

2.3.2010

Fjórir fara á Old Trafford

Stjórn Manchester United klúbbsins á Íslandi dró nýverið út nöfn fjögurra fatlaðra stuðningsmanna sem fá boðsferð á leik á Old Trafford. Ferðirnar eru fjármagnaðar með happdrætti sem klúbburinn hefur staðið fyrir að undanförnu.

Upphaflega stóð til að draga tvo aðila, sem fá ferð ásamt aðstoðarmanni, en þar sem happdrættið hefur gengið vel var ákveðið að draga út tvær ferðir í viðbót og þá sem ferð fyrir einn.

Þeir sem  fengu ferð fyrir tvo eru:
Daníel  Þór Gunnarsson, 15 ára, Kópavogi.
Ólafur Rafn Ólafsson, 40 ára, Sauðárkróki.

Þeir sem fá boðsferð fyrir einn eru:
Hákon Atli Bjarkason, 18 ára, Hafnarfirði.
Stefán Stefánsson, 28 ára, Reykjavík.

Í happdrættinu verður dregið í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport í hálfleik í leik Manchester United og Fulham þann 14. mars.


Skráðu þig á póstlista