Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir frá klúbbnum

18.2.2010

Styðjum ferð fatlaðra stuðningsmanna á Old Trafford!

MUDSA  eða  Manchester United Disabled Supporters Association  er deild  innan Manchester United  sem var stofnuð formlega  1989  og markmiðið í stuttu máli aðstoð við fatlaða stuðningsmenn.
 
MUDSA skilgreinir sína félagsmenn sem:   Heyrnarskerta,  fólk sem þarf  að nota hjólastól,  fólk með námserfiðleika,  gamalt veikburða/ hreyfiskert fólk. Ef þú veist um fatlaðan stuðningsmann sem er félagi í
stuðningsmannaklúbbi Manchester United á Íslandi sem vill komast frítt á leik ásamt umsjónarmanni - láttu okkur vita strax!

Vinsamlegast sendið ábendingu með greinagóðum upplýsingum ánetfangið: steinn@manutd.is

Happdrættið gengur vel.

Það eru örfáir miðar eftir í happdrættinu sem er til styrkar ofangreindu verkefni. Aðalvinningurinn í happdrættinu er ferð fyrir 2 með flugi, hóteli og miða á lokaleik Manchester United í maí (tökum við bikarnum!). Aukavinningar eru 50.000 króna gjafabréf frá VITA ferðum, Man U treyjur, hjólabakpokar með fullt af merktum Man U varningi, áskrift að
Stöð 2 Sport og fleira. Hver miði kostar kr. 1.000. Miða er hægt að fá hjá Hafsteini Valssyni, gjaldkera
stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi í síma 864 8036 eða á netfangið hafsteinn@manutd.is
 
Styðjum ferð fatlaðra stuðningsmanna á Old Trafford!

Stuðningsmannaklúbbur Manchester United á Íslandi


Skráðu þig á póstlista