Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir frá klúbbnum

9.5.2012

Skoskir aðalbúningar á næsta tímabili?

Búningarnir hjá Manchester United fyrir næsta tímabil eru komnir á netið. Í gær var mynd sett á Facebook síðu Manchester United af nýju búningum sem verða að nokkuð óvenjulegir,  því búningarnir næsta tímabil verða köflóttir!

30.4.2012

Upphitun: Sir Alex íhugar að stilla upp 5 manna miðju

Enskir fjölmiðlar segja að Sir Alex sé að íhuga að breyta út af vananum og spila með 5 manna miðju í leiknum gegn Manchester City í kvöld. Hugmyndin er að unglingurinn Danny Welbeck fari á bekkinn og hlaupagikkurinn Park Ji-Sung fari á miðjuna

29.4.2012

Sir Alex ætlar að bjóða 10 milljónir í Gylfa

Sir Alex er sagður vera að undirbúa 10 milljón punda tilboð í íslenska miðjumanninn Gylfa Sigurðsson. Gylfi hefur, eins og allir vita, slegið í gegn á lánssamning hjá Swansea, en hann kom til liðsins í janúar. Sir Alex var mættur á völlinn þegar Swansea tók á móti Wolves.

25.4.2012

Danny Welbeck framlengir

Framherjinn Danny Welbeck hefur skrifað undir langtíma samning við Manchester United. Welbeck sem hefur skorað 12 mörk á tímabilinu og verður líklega í enska landsliðshópnum á EM í sumar. Welbeck er nú að skrifa undir samning sem heldur honum á Old Trafford næstu 5 árin

24.4.2012

Rooney eini djöfullinn í liði tímabilsins

Wayne Rooney var eini leikmaðurinn úr Manchester United sem komst í lið ársins í Ensku Úrvalsdeildinni. Rooney er næst markahæstur í deildinni með 26 mörk, einu marki frá Robin van Persie sem var valinn bestur, bæði af íþróttafréttamönnum og leikmönnum deildarinnar

11.4.2012

Rio ætlar að vera áfram

Varnarmaðurinn Rio Ferdinand segir í viðtali að hann sé stoltur af því að hafa verið hjá Manchester United í 10 ár og að hann sé ekkert farinn að hugsa um að leggja skóna á hilluna. Í gríni sagðist hann frekar vera til í að vera í áratug í viðbót.

Skráðu þig á póstlista