Beint á leiðarkerfi vefsins

Sunderland 0 - ManUtd 1 

17.5.2012

Owen á förum frá United

Framherjinn Michael Owen hefur staðfest að hann sé á förum frá United eftir að félagið ákvað að bjóða honum ekki nýjan samning. Owen hefur ekki spilað leik með United síðan í nóvember í fyrra vegna meiðsla.

16.5.2012

Evra: Erfiðasta leiktíðin á ferlinum

Patrice Evra segir að yfirstandandi tímabil með United hafi verið sitt erfiðasta frá upphafi. Hann missti bróður sinn í október í fyrra ásamt því að lenda í löngum réttarhöldum vegna kynþáttaníðs Luis Suarez í hans garð.

16.5.2012

De Laet og James seldir til Leicester

Leicester City hafa fest kaup á Ritchie De Laet og Matthew James frá Manchester United. Kaupverðið er ekki gefið upp en knattspyrnustjóri Leicester, Nigel Pearson, er himinlifandi með kaupin.

15.5.2012

Giggs og Ferguson bestir

Enska Úrvalsdeildin fagnaði 20 ára afmæli á þessu tímabili. Í því tilefni var haldin kosning um bestu leikmenn og mörk þessara ára. Eins og gefur að skilja voru United menn einstaklega duglegir að safna til sín verðlaunum, en Sir Alex var valinn besti stjórinn og Ryan Giggs besti leikmaðurinn

5.1.2012

Happdrættisnúmerin - dregin út 4. janúar 2012

Happdrættisnúmerin - dregin út 4. janúar 2012.
Óskum vinningshöfum til hamingju og þökkum þeim sem keyptu miða kærlega fyrir stuðninginn.

Skráðu þig á póstlista
Javascript og flash þarf til að sjá kynningarmynböndin.
Ná í flash spilarann.