Beint á leiðarkerfi vefsins

Ferðir á leiki 2011 / 12

Líkt og síðasta vetur verða Stuðningsmannaklúbbur Man.Utd á Íslandi og VITA Sport með ferðir á flesta heimaleiki Man.Utd á komandi keppnistímabili. Ekki er hægt að kaupa ferð á leik nema að vera skráður félagi í stuðningsmannaklúbbnum!
Líkt og verið hefur byggja ferðirnar á beinu áætlunarflugi til Manchester með Icelandair, gistingu á Novotel hótelinu í miðborg Manchester og miðarnir á vellinum verða í suðurstúkunni í hólfi STH 126 (niðri við varamannabekkina!).
Eftirfarandi leikir eru komnir í sölu hjá VITA Sport á heimasíðu þeirra www.vita.is , en einnig er hægt að bóka og nálgast upplýsingar með því að senda tölvupóst á tonsport@vita.is eða hafa samband í síma 570-4444. Verð miðast við að bókað sé í gegnum vita.is. Bókunargjald (2.400 kr.) leggst við þegar bókað er í gegnum skrifstofu.
Man.Utd v Tottenham 19. - 22. ágúst
Man.Utd v Arsenal 26. - 29. ágúst
Man.Utd v Chelsea 16. - 19. september
Man.Utd v Norwich 30. september - 3. október
Man.Utd v Man.City 21. - 24. október
Man.Utd v Sunderland 4. - 7. nóvember
Man.Utd v Newcastle 25. - 28. nóvember
Man.Utd v Wolves 9. - 12. desember 
Man.Utd v Bolton 13. - 16.  janúar  
Man.Utd v Liverpool 10. - 13.  febrúar 
Man.Utd v WBA 9. – 12.  mars  
Man.Utd v Fulham 23. – 26.  mars
Man.Utd v QPR 6. – 9. apríl
Man.Utd v Everton 20. – 23. apríl
Man.Utd  v Swansea 4. – 7. maí

Verð: 96.000 kr. á mann í tvíbýli (eða 86.000+15.000 vildarpunktar)
Verð: 121.500 kr. á mann í einbýli (111.500 kr. + 15.000 vildarpunktar)

Innifalið í verði: Flug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði, rútur til og frá flugvelli og miði á leikinn.
ATH: Hægt er að nota vildarpunkta til að greiða fyrir 10.000 kr. af virði ferðarinnar, til þess þarf að nota 15.000 vildarpunkta.

FlugFöstudagur KEF MAN FI 440 8:00 10:35Mánudagur MAN KEF FI 4441 12:25 15:00 
GistingNovotel21 Dickinson StreetMI 4LXManchester
Nánari upplýsingar á tölvupósti tonsport @vita.is. Greiddir meðlimir í Man.Utd klúbbnum hafa forgang í allar þessar ferðir

Sætin á Old Trafford

Sætin sem VITA hefur á Old Trafford eru á mjög góðum stað í suður-stúkunni, hægra megin við varamannabekki. Sætin eru á svæði merkt STH126 á myndinni hér fyrir neðan.

Sætaskipan


Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista