Beint á leiðarkerfi vefsins

Bikarkeppnir

31.7.2010

Hitað upp fyrir leik: Chelsea

Óljósar fréttir berast af því hvort Michael Carrick verði með í Samfélagsskildinum gegn Chelsea á morgun. Hann haltraði út af meiddur á ökkla í æfingaleik í vikunni en sumir ensku miðlanna segja að hann sé tilbúinn í leikinn á morgun.

Rio Ferdinand er meiddur og Patrice Evra er ekki orðinn leikfær. Sir Alex Ferguson segir að eftir mikið álag á Evra seinustu ár hafi verið ákveðið að gefa honum frí fyrir utan lætin sem urðu í herbúðum franska landsliðsins í sumar. Evra er byrjaður að æfa en missir af fyrstu deildarleikjum United.

Ferguson hét því í gær að Michael Owen og Wayne Rooney fengju hið minnsta einn hálfleik hvor. Owen vonast eftir að Wembley-völlurinn reynist honum betur en seinast þar sem hann tognaði illa aftan í læri í úrslitaleik deildarbikarsins.

Ferguson ætlar ekki að leggja of miklar byrðar á herðar þeirra leikmanna sem léku á HM strax en það eru Wayne Rooney og Nemanja Vidic.

Carlo Ancelotti, þjálfari Chelsea, er fullur sjálfstrausts og hefur tilkynnt byrjnarlið sitt. Hilario er í markinu í stað Peter Cech og Didier Drogba á bekknum en þeir Salomon Kalou, Nicolas Anelka og Florent Malouda verða frammi.

Leikurinn hefst klukkan 14:00. Stuðningsmenn Manchester United á Íslandi safnast saman á SPOT og 80‘s Club sem verða heimavellir klúbbsins í vetur.

Byrjunarlið Chelsea: Hilario, Ivanovic, Terry, Ferreira, Cole, Essien, Lampard, Mikel, Kalou, Anelka, Malouda.

-Zunderman

Athugasemdir »

1

mmm

8.8.2010 03:58
sjitt hvað eg er spenntur fyrir þessu!!!
2

Giggs_11

8.8.2010 04:37
Hilario stendur milli stanga marks Chelski, Essien búinn að vera meiddur shit lengi og Ancelotti er að halda Cole gegn hans vilja hjá þeim bláu. United er búið að vinna leikinn, hvesu stór sigurinn verður er eina spurningin. Þessi Chelski markvörður er vængefinn þannig að ég er að búast við rústi.
3

Bjáni

8.8.2010 06:32
The higher u build your hopes the further the fall will be, þar af leiðandi er ég að búast við erfiðum og stífum leik þar sem við skröpum 1-0 sigur eða maski 2-1. Svo ekki séu gerð mistök þá er ég united maður, brenndur inn að beini :P
4

Hetjan

8.8.2010 14:01
Giggs_11 er meistari!!
5

jón

8.8.2010 16:04
HAHA!
6

united

8.8.2010 18:00
EYO! hernandez með sprengihlægjilegt mark en mark samt sem áður! flottur leikur hjá stráknum fyrir utan markid var hann mjög góður að halda boltanum og halda spilinu gangandi og sýndi virkilega að hann getur skorað mörk fyrir okkur á tímabilinu
7

Drangi

9.8.2010 12:50
fengum við einhvern pening uppí skuldirnar fyrir sigurinnÓákveðinn
8

Eiríkur

9.8.2010 14:10
var einmitt að spá hvort hann megi hafa gælunafn aftaná tryejunni. Hernadez er svalara finnst mér
9

Hlandbladra

9.8.2010 15:28
Mikid djof. eru A.Cole og W. Rooney omerkilegir drulludelir og otrulegt hversu lagt thessir omerkilegu menn leggjast lagt. Ekki i fyrsta skiptid sem their syna tha hlid a ser hversu miklir drullusokkar their eru virkilega og hvernig manneskju their hafa ad geyma. Badur hundsudu Capello eftir leikinn og toku ekki i hondina a honum thegar their lobbudu framhja honum eins og allir adrir leikmenn gerdu. Eg held ad thessir menn aettu adeins ad lyta i eigin barm thar sem their gatu ekkert a HM og hafa sjaldan getad eitthvad med Enska landslidinu. Eg aetla svo innilega ad vona ad Capello velji tha ALDREI aftur i landslidid, their eru ekki verdugir til ad spila fyrir England!!!
10

Hörður

9.8.2010 16:09
mér er bara drullu sama hvort rooney er lelegur með landsliðinu ef hann er að standa sig vel með united

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista