Beint á leiðarkerfi vefsins

Bikarkeppnir

8.7.2010

Hitað upp fyrir leik: Chelsea

Óljósar fréttir berast af því hvort Michael Carrick verði með í Samfélagsskildinum gegn Chelsea á morgun. Hann haltraði út af meiddur á ökkla í æfingaleik í vikunni en sumir ensku miðlanna segja að hann sé tilbúinn í leikinn á morgun.

Rio Ferdinand er meiddur og Patrice Evra er ekki orðinn leikfær. Sir Alex Ferguson segir að eftir mikið álag á Evra seinustu ár hafi verið ákveðið að gefa honum frí fyrir utan lætin sem urðu í herbúðum franska landsliðsins í sumar. Evra er byrjaður að æfa en missir af fyrstu deildarleikjum United.

Ferguson hét því í gær að Michael Owen og Wayne Rooney fengju hið minnsta einn hálfleik hvor. Owen vonast eftir að Wembley-völlurinn reynist honum betur en seinast þar sem hann tognaði illa aftan í læri í úrslitaleik deildarbikarsins.

Ferguson ætlar ekki að leggja of miklar byrðar á herðar þeirra leikmanna sem léku á HM strax en það eru Wayne Rooney og Nemanja Vidic.

Carlo Ancelotti, þjálfari Chelsea, er fullur sjálfstrausts og hefur tilkynnt byrjnarlið sitt. Hilario er í markinu í stað Peter Cech og Didier Drogba á bekknum en þeir Salomon Kalou, Nicolas Anelka og Florent Malouda verða frammi.

Leikurinn hefst klukkan 14:00. Stuðningsmenn Manchester United á Íslandi safnast saman á SPOT og 80‘s Club sem verða heimavellir klúbbsins í vetur.

Byrjunarlið Chelsea: Hilario, Ivanovic, Terry, Ferreira, Cole, Essien, Lampard, Mikel, Kalou, Anelka, Malouda.

-Zunderman

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista