Bikarkeppnir
3.6.2010
Skráðu þig í golfmót Manchester United klúbbsins

Kæri Man UTD stuðningsmaður...
...skráning að hefjast í eitt skemmtilegasta golfmót ársins!
Mótið er nú haldið í 6. sinn og í ár ætlum við að hrista aðeins til og leika með breyttu fyrirkomulagi.
Hátíðin verður á Hlíðavelli í Mosfellsbæ laugardaginn 19. júní og við hvetjum alla til að taka daginn frá.
Mótið er haldið í samstarfi við Golfklúbbinn Kjöl (GKJ) og Stuðningsmannaklúbb Manchester United á Íslandi.
Keppt verður í tveggja manna Texas-Scramble og verða leiknar 14 holur. Ræst verður út frá kl. 08:00-14:00.
Skráning hefst í dag kl. 13.00 á golf.is eða í síma 566-7415.
Nánari upplýsingar um mótið: http://golf.is
Glory glory Man UTD!
Kveðja,
Hans Henttinen
Pétur Óskar Sigurðsson
Sigurður Hlöðversson















Haukur guðmundsson
Manchester United eru lang bestir í heimi
Kveðja Haukur Guðmundsson