Bikarkeppnir
26.4.2010
Fletcher: Munum ekki örvænta
Darren Fletcher er viss um að leikmenn United muni halda ró sinni í lokaumferðum deildarinnar. Chelsea vann sinn leik í gær og eru aftur komnir á toppinn með einu stigi meira en United þegar tvær umferðir eru eftir. Þeir bláklæddu mæta Liverpool á Anfield í næstu umferð á meðan United sækir Sunderland heim.
Manchester United vann góðan 3-1 sigur á Tottenham á Old Trafford um helgina. Daginn eftir svaraði Chelsea með 7-0 bursti á Stoke City. Flestir stuðningsmenn United binda helst vonir við að Liverpool geti stolið stigum af Chelsea í síðustu tveimur umferðum deildarinnar.
En jafnvel þó hlutirnir munu ekki ganga upp strax í upphafi leiks gegn Sunderland um næstu helgi þá ítrekar Fletcher að leikmennirnir muni engu að síður halda ró sinni. Þeir gerðu það bæði gegn Man City og Tottenham og ætla ekki örvænta.
„Við höldum bara áfram að trúa á þann fótbolta sem við spilum. Við örvæntum ekki. Þó við hendum fleiri leikmönnum fram í sóknina þá reynum við enn að spila boltanum á milli okkar, reyna að teygja á spilinu út á vængina og skapa marktækifæri. Stundum vilja stuðningsmennirnir fá boltann fram strax en 50/50 boltar eru ekki vænlegir til árangurs. Við viljum spila á þann hátt sem við kunnum best." sagði Fletcher.
Sú aðferð gekk upp gegn Tottenham eftir að þeir jöfnuðu leikinn í 1-1 gegn United. Á síðustu níu mínútum leiksins skoruðu United menn tvö mörk og hirtu öll þrjú stigin. Hinsvegar eru þó meiri líkur á að Chelsea taki titilinn í ár þar sem þeir stjórna sínum örlögum sjálfir. Ferguson er engu að síður hálf hissa á að vera enn með í baráttunni þar sem hann hélt að eftir markalausa jafnteflið gegn Blackburn að titilvonirnar væru foknar út í veður og vind.
„Ég hélt að þá væri titilbarátta okkar búin. Mér fannst við vera dauðir og jarðaðir á þeim tímapunkti." sagði Ferguson.
United eru hinsvegar enn með í baráttunni en verða þó án síns besta leikmanns, Wayne Rooney, í síðustu tveimur leikjunum. Rooney meiddist á æfingu fyrir leikinn gegn Tottenham og telur Ferguson að hann verði frá í 2-3 vikur. Í fjarveru Rooney munu United reiða sig á Dimitar Berbatov í sókninni, en hann átti fínan leik gegn fyrrum félagi sínu Tottenham. Reynsluboltarnir Giggs og Scholes þóttu einnig eiga góðan leik. Fletcher varpaði ljósi á það hversu mikilvægir þeir væru liðinu, innan vallar sem utan.
„Það eru engir tveir leikmenn sem eru betri undir álagi en Paul og Ryan. Þeir hafa staðið í þessu í 15-20 ár og þeir eru enn að skila glæsilegum frammistöðum. Það er frábært að hafa reynslu í liðinu. Þeir eru fæddir sigurvegarar, það er einmitt það sem þú vilt hafa í liðshópnum." sagði Fletcher.
Bæði Giggs og Scholes munu þurfa að nota alla sína reynslu í lokaumferðum deildarinnar og minna liðsfélaga sína á að ekkert er ómögulegt í knattspyrnunni. Scholes var einmitt varamaður í liði United sem heimsótti West Ham í lokaumferð deildarinnar tímabilið 1994-1995. Til að vinna titilinn þurfti United á þremur stigum að halda og Liverpool að vinna Blackburn á sama tíma. Efasemdir voru hafðar uppi um hvort Liverpool menn myndu beita sér að fullu gegn Blackburn en þeir fóru engu að síður með sigur af hólmi. Það voru hinsvegar United sem klúðruðu sínum málum á Upton Park og því misstu þeir af titlinum það árið.
Þetta sannar orð Fletcher um að leikmenn United verða fyrst og fremst að einbeita sér að sjálfum sér og þeim leikjum sem þeir eiga eftir.
„Eftir að Chelsea unnu okkur á Old Trafford þá hefur þetta verið þeirra titill til að tapa. Þetta verður tæpt en við verðum að einbeita okkur að okkur sjálfum og vinna leikina okkar. Ef við sigrum ekki okkar leiki þá skiptir engu máli hvað Chelsea gerir." sagði Fletcher að lokum.
- Daði Már















sökkið