Beint á leiðarkerfi vefsins

Bikarkeppnir

1.4.2010

Fletcer að öllum líkindum til Barcelona

Samningaviðræður Darren Fletcher við forráðamenn United hafa siglt í strand og er leikmaðurinn sagður mjög óánægður með þann samning sem er á borðinu. United segjast ekki geta gefið leikmanninum hærri laun þar sem félagið hafi ekki svigrúm til þess vegna skulda. Barcelona hafa blandað sér í leikinn og ætla sér að klófesta miðjumanninn.

Hlutirnir hafa þróast hratt undanfarna daga. Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Barcelona, er mjög hrifinn af vinnusemi Fletcher á miðjunni og sagði meðal annars í viðtali vera mikill aðdáandi hans. AC Milan eru einnig sagðir fylgjast grannt með þróun mála en. Hinn 26 ára gamli Fletcher á tvö ár eftir af núverandi samningi sínum en forráðamenn United hafa boðið honum samning til ársins 2014. Hinsvegar er sá samningur með sömu launatölu og gamli samningurinn og það er Fletcher mjög óánægður með og vill hann fá svipaða upphæð í laun og aðrar stjörnur liðsins. Núverandi laun Fletcher eru sögð í kringum £50.000 pund á viku en aðrir lykilmenn liðsins eru með um £90.000-120.000 pund á viku.

Umboðsmaður Fletcher segir að Barcelona hafi haft samband við sig og séu tilbúnir að gera allt að £34 milljón punda tilboð í leikmanninn og má vænta þess að formlegt tilboð berist strax eftir helgi. Spánverjarnir vilja ganga frá kaupunum sem fyrst enda eru þeir taldir vera að leita sér að arftaka fyrir varnarsinnaða miðjumanninn Yaya Toure sem er sagður á leið frá félaginu í sumar. Ef United samþykkir kauptilboðið þá mun Fletcher ganga til liðs við Barcelona þann 1. júní næstkomandi. Barcelona munu bjóða Fletcher 5 ára samning með £115.000 pund á viku. Samkvæmt umboðsmanni þá er leikmaðurinn tilbúinn til að breyta til en eiginkona Fletcher á einnig ættingja á Spáni. Talið er að ránið sem eiginkona Fletcher upplifði í febrúar 2009 spili einnig inn í ákvörðun þeirra en þá var brotist inn á heimili þeirra í Manchester og henni og sonum þeirra ógnað með hnífum meðan Fletcher var á ferðalagi með United á Ítalíu.

Sir Alex Ferguson hefur sjálfur sagt að allir leikmenn hafi sitt verð og er talið líklegt að United geti ekki hafnað svo stóru tilboði í Fletcher. Ferguson er sagður reiðubúinn að sætta sig við peninginn sem fæst fyrir miðjumanninn ef það þýðir að hann þurfi ekki að selja stjörnuframherjann sinn Wayne Rooney í sumar og vonast Ferguson til þess að Owen Hargreaves leysi stöðu Fletcher á miðjunni. Erlendir miðlar hafa það eftir umboðsmanni Fletcher að leikmaðurinn sé orðinn langþreyttur á að vera ekki metinn til verðleika hjá United og ekki bætir úr skák að Ferguson hafi hellt sér yfir hann eftir tapið gegn Bayern Munchen, en miðjan hjá United lék alls ekki vel í þeim leik.

Sést hefur til Joan Laporta, forseta Barcelona, í Manchester borg undanfarna daga en Barcelona spiluðu einmitt í London í gærkvöldi við lið Arsenal í meistaradeildinni.


ATH: Þessi frétt var aprílgabb hjá fréttariturum manutd.is

 

Athugasemdir »

1

D

1.4.2010 15:29
Haha rólegir
2

D

1.4.2010 15:31
haha kemur
3

dazor

1.4.2010 15:33
1 apríl !!!!!!!!!!
4

Svenni

1.4.2010 15:43
Aprílgöbb snúast um að fá fólk til að hlaupa apríl. Betra hefði verið "Meiddur Rooney til Íslands" eða eitthvað svoleiðis.. en þetta er bara aumkunarvert..
5

siggi

1.4.2010 18:21
1. april !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Hlæjandi þeir ná ekki að plata okkur svona
6

bullshit

1.4.2010 18:33
Það myndi enginn borga 34 milljónir punda fyrir Fletcher.
7

Sindri

1.4.2010 18:44
hehe
8

Legend7

1.4.2010 19:39
HAHAHAHA, þessi er góð
9

alex

1.4.2010 20:57
1 apríl
10

evans

1.4.2010 22:32
right
11

Eiríkur

2.4.2010 00:38
Fletcher mun alldrei fara frá Bretlands eyjum spænskur bolti henntar honum ekki
12

sæll

2.4.2010 03:42
Maður var farin að spyrja sig  hvaðan í ósköpönum þeir hefðu grafið þetta rugl upp
13

Gæi

2.4.2010 11:04
34 miljónir er of lítið fyrir þennan besta miðjumann heims
14

Aron

2.4.2010 12:43
Það er 2. apríl og ég var að lesa þetta núna, andlitið mitt fölnaði meira og meira því lengra sem ég var kominn inn i fréttina. Djöfull var ég ósáttur með þetta en svo þegar ég sá kommentin þá létti svo sannarlega á hjartanu minu !! :D

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista