Beint á leiðarkerfi vefsins

Bikarkeppnir

24.3.2010

Stjórnandi segir Glazer standa undir væntingum

Markaðsstjóri Manchester United, Richard Arnold, tekur ekki undir málstað þeirra sem vilja að Glazer fjölskyldan gefi frá sér félagið sem fyrst. Hann segir miklar framfarir hafa orðið í markaðssetningu félagsins undanfarin ár og tekjur af henni stóraukist.

Arnold segir að seinasta vika hafi verið frábær, jafnvel á United mælikvarða, en United er nýbúið að semja við þrjá styrktaraðila. Framtíðin sé því björt

Arnold segir að auglýsingatekjur United hafi aukist verulega síðustu ár, fyrir utan tekjur af miðasölu. Síðan að Glazer fjölskyldan tók við félaginu hefur hagnaður United á auglýsingum aukist um 65,25% eða upp í 69,9 milljónir punda.

„Þeir eru frábærir menn og standa undir öllu sem Sir Alex segir," segir Arnold. „Þeir gefa okkur frelsi til fjárfestinga og þess vegna erum við að sjá þessar glæsilegu niðurstöður."

-Arnar Kjartansson 

Athugasemdir »

1

macherinn

25.3.2010 20:17
það er ekki nóg að sjá glæsilegar niðurstöður í samningagerðum og auglýsingum þegar skuldir félagsins virðast ekkert minka.
2

aron

30.3.2010 11:07
það á ekki að leyfa svona mönnum að eiga félög þegar þeir geta ekki borgað skuldir sínar eiga þeir ekki að eiga félög og þar að auki er glazer fjöskyldan bara í eitthveju fokki núna og er búin að vera

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista