Beint á leiðarkerfi vefsins

Bikarkeppnir

28.2.2010

Aston Villa 1 - Man Utd 2

Manchester United urðu í dag enskir deildarbikarmeistarar eftir góðan 2-1 sigur á Aston Villa á Wembley leikvanginum. Michael Owen og Wayne Rooney sáu um markaskorun United eftir að James Milner hafði komið Aston Villa yfir strax í upphafi leiks með marki úr vítaspyrnu.

United vörðu titil sinn frá því í fyrra en þá sigruðu þeir Tottenham eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. Leikurinn gegn Aston Villa var oft á tíðum hin mesta skemmtun, opinn, hraður og skemmtilegur.

United hvíldu Edwin Van der Sar, Wayne Rooney og Wes Brown í dag. Rooney neyddist hinsvegar til að reima á sig takkaskóna og koma inn á í stað Michael Owen sem fór meiddur af velli í lok fyrri hálfleiks.

Aston Villa fengu draumabyrjun þar sem dæmd var vítaspyrnu á Nemanja Vidic eftir að hann braut á Gabriel Agbonlahor innan vítateigs á 5. mínútu leiksins. Stuðningsmenn Villa vildu einnig fá rautt spjald á Vidic en dómari leiksins, Phil Dowd, lét nægja að dæma vítið. James Milner tók spyrnuna og skoraði örugglega.

En Villa menn héldu forskotinu aðeins í rúmar tíu mínútur þar sem Michael Owen jafnaði metin með hnitmiðuðu skoti í fjærhornið hjá Brad Friedel. Dimitar Berbatov hafði unnið boltann af Richard Dunne í vörninni og keyrði í átt að marki. Dunne tæklaði Berbatov og boltinn barst til Owen sem þakkaði pent fyrir sig og kláraði færið.

Undir lok fyrri hálfleiks munaði minnstu að United færu með forskot inn í leikhléið en þá átti Ji-Sung Park gott skot sem fór í innanverða stöngina og var boltinn í kjölfarið hreinsaður af marklínunni af Carlos Cuellar, varnarmanni Villa.

Fletcher og Carrick stjórnuðu miðjuspilinu í seinni hálfleik. En það var ekki fyrr en á 74. mínútu sem United komust yfir í leiknum. Berbatov og Valencia áttu gott þríhyrningsspil saman, Valencia sendi boltann fyrir og auðvitað var Wayne Rooney mættur til að skalla knöttinn í netið. Þetta var 28. mark Rooney á tímabilinu í öllum keppnum, ótrúlegt afrek hjá þessum 24 ára framherja.

Rooney hefði getað gert út um leikinn skömmu síðar en fastur skalli hans endaði þá í stönginni. Villa menn reyndu hvað þeir gátu til að sækja undir lokin en gekk illa að skapa sér opin færi. Norski framherjinn John Carew kom inn á í stað varnarmannsins Carlos Cuellar en allt kom fyrir ekki.

Dimitar Berbatov og Antonio Valencia þóttu helst koma til greina sem menn leiksins af erlendum fréttamiðlum en þeir áttu báðir fínan leik að þeirra mati.  

Þetta var fimmti sigur United í enska deildarbikarnum og í fyrsta skipti í sögunni sem United tekst að verja bikarmeistaratitil frá árinu áður. Sigurinn í dag gefur vonandi góð fyrirheit um það sem koma skal á þessari leiktíð en United eru sem stendur einungis einu stigi á eftir Chelsea í deildinni.

Liðshópar:

Aston Villa: Friedel, Cuellar, Collins, Dunne, Warnock, Ashley Young, Milner, Petrov, Downing, Heskey, Agbonlahor.
Varamenn: Guzan, Luke Young, Sidwell, Carew, Delfouneso, Delph, Beye.

Man Utd: Kuszczak, Rafael Da Silva, Vidic, J Evans, Evra, Valencia, Fletcher, Carrick, Park, Owen, Berbatov.
Varamenn: Foster, Neville, Brown, Rooney, Scholes, Gibson, Diouf.

 

Athugasemdir »

1

Mercy

28.2.2010 21:18
props fyrir Micheal Owen þær mínútur sem hann spilaði, þvílík unun að fylgjast með honum í dag. Sniðugur að finna sér pláss milli varnar og miðju og snillingur að þefa upp góð marktækifæri og markið hans var einstaklega fagmannlegt!
2

Kisi

1.3.2010 02:12
Algjörlega sammála Mercy, maðurinn er fæddur markaskorari. Algjör snillingur í að staðsetja sig og búa til pláss
3

Hjötti

1.3.2010 13:37
Sammála ykkur báðum hér á undan, og skandall hvað þessi maður fær lítið að spila. Spurning hvort að það sé ekki ástæðan fyrir tognunini, og vallarskilyrðum, alla vega taldi stjórinn það geta verið. Einnig hældi stjórinn honum þann tíma sem hann var inná, sagði hann hafa verið einn bestu sinna manna í fyrri hálfleik. En því miður virðist það ekki nægja Ferguson, alla vega lætur hann manninn verma bekkinn leik eftir leik, svona svipað og var gert með Tevez sem blómstrar heldur betur hjá félagi sem hann fær að spila hjá, og skorar hvert markið á fætur öðru. Maður spyr sig hvers vegna er, og var beggjasetan hjá þessum mönnum svona stíf?
4

dada

1.3.2010 13:44

Hjötti ertu í alvörunni svona vittlaus?

 Við erum búnir að vera spila 4-5-1 með Rooney uppá topp og eins og staðan er í dag er enginn striker í heiminum betri en Rooney. Einnig þegar við dettum í 4-4-2 þá er Berbatov fullkominn með Rooney, þetta er bara óheppni fyrir Owen að Rooney sé að spila svona vel núna.

5

Hjötti

1.3.2010 14:59
dada ég er svo vitlaus að ég nenni ekki að svara þér.
6

Aron

1.3.2010 23:20
Hjötti þú varst að svara honum. Það er ástæða fyrir því að Owen er látinn varma bekkinn meira en aðrir hafa haldið, þið megið ekki gleyma að hann fékk Owen til liðs við United til þess að vera Varamaður í fyrsta lagi. Og það hefur hann verið, í örðu lagi þá er Rooney eins og Dada segir Besti framherji í heiminum um þessar mundir. Og við spilum oft leikkerfið 4-5-1 mikið sem er mjög gott fyrir meistaradeildina. Í þriðja lagi þegar við spilum 4-4-2 þá er Berbatov perfect með Rooney sér við hlið, eða eigum við ekki að segja að Berbatov er perfect með Rooney sér við hlið. En hins vegar má rooney alveg fá fleiri tækifæri í byrjunarliðinu eins og þu vilt Hjötti það bara er erfitt núna og Owen veit það sjálfur.
7

Aron

1.3.2010 23:23
Ég meinti en hins vegar má Owen fá fleiri tækifæri fyrirgefiði.
8

Kisi

2.3.2010 00:04
Persónulega myndi ég vilja sjá Owen með Rooney frammi í 4-4-2, Alltaf þegar hann hefur komið inná er hann að sýna snilldar takta, sama hversu lengi hann fær ekki að spila, meðan Berbatov er ekki búinn að standa undir þessum 30+milljónpunda verðmiða, alls ekki, vissulega mjög góður leikmaður en hann er ekki að gera einhverja svakalega hluti.
9

Viktor

3.3.2010 00:23
fór á leikinn frábær upplifun :-))

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista