Beint á leiðarkerfi vefsins

Bikarkeppnir

27.2.2010

Upphitun: Aston Villa - Man Utd

Manchester United hefur aldrei áður tekist að verja bikarkeppnistitil. Þeir mæta Aston Villa á Wembley á morgun í úrslitaleik enska deildarbikarsins. United sigruðu Tottenham í þessari sömu keppni á síðustu leiktíð eftir dramatíska vítaspyrnukeppni. Það þýðir því að rauðu djöflarnir verða að breyta sögunni til að hampa titlinum aftur í ár.

 

Rio Ferdinand og Ryan Giggs munu ekki spila leikinn vegna meiðsla. Það sama má segja um O‘Shea, Hargreaves og Anderson sem allir glíma við langtímameiðsli. Nani verður einnig frá þar sem hann tekur út leikbann.

Sir Alex Ferguson stendur því frammi fyrir nokkrum erfiðum ákvörðunum varðandi liðsuppstillinguna. Bakvörðurinn Rafael missti af úrslitaleiknum á síðustu leiktíð vegna meiðsla. Talið er víst að Ferguson stilli Rafael upp í hægri bakverðinum á morgun og verður þetta því fyrsti úrslitaleikur leikmannsins á ferlinum, en Rafael er enn einungis 19 ára.

Markvarðarstaðan er óskrifað blað og valið stendur á milli þeirra Edwin Van der Sar, Ben Foster og Tomasz Kuszczak. Foster spilaði í sigurleiknum gegn West Ham í deildinni á dögunum þar sem Van der Sar var gefið langþráð frí eftir mikið leikjaálag undanfarnar vikur. Kuszczak hefur spilað tvo leiki í deildarbikarnum, Van der Sar tvo og Foster einn, en báðir leikir Van der Sar voru í undanúrslitunum gegn Man City.

Wes Brown og Jonny Evans keppast um að vera við hlið Nemanja Vidic í hjarta varnarinnar, en Brown þykir líklegri hvað það varðar eftir daprar frammistöður hjá Evans undanfarna leiki.

Þrátt fyrir að United hafi yfirburði í heildareinvígum sínum gegn Aston Villa þá státa Villa menn af betri úrslitum gegn þeim rauðklæddu á þessari leiktíð. Villa menn unnu langþráðan sigur á United á Old Trafford í desember og var það fyrsti sigur Villa manna á heimavelli United síðan árið 1983. Í febrúar mættust þessi lið aftur á Villa Park og enduðu leikar með jafntefli eftir að Nani hafði fengið að líta rauða spjaldið í fyrri hálfleik.

„Villa sýndi gæði sín á Old Trafford." sagði Michael Carrick í viðtali fyrir leik morgundagsins.

„Þeir eru góðir í skyndisóknum. Þeir eru með hraða, kraft og nóg af hæfileikum. Þeir eru með heilsteypt lið sem er einnig nokkuð sterkt varnarlega. Það er erfitt að spá fyrir um hvernig þeir munu nálgast leikinn þar sem þetta er úrslitaleikur með titil í húfi. Þú getur ekki sætt þig við jafntefli eins og um deildarleik væri að ræða."

„Við munum reyna að spila okkar venjubundna bolta. Vonandi mun það skila okkur góðum úrslitum." sagði Carrick að lokum.

Fyrirliði Aston Villa, Stiliyan Petrov, er í kapphlaupi við tímann til að ná sér góðum af veikindum sem hafa verið að hrjá hann undanfarið. Petrov er þó byrjaður að æfa aftur en hann missti af sigurleik Aston Villa gegn Crystal Palace í vikunni vegna veikindanna.

Knattspyrnustjóri Aston Villa, Martin O‘Neill, þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af meiðslum í sínum herbúðum en Nigel Reo-Coker er sá eini á meiðslalistanum. Brad Friedel, James Collins og Emile Heskey eru allir væntanlegir aftur í lið Villa eftir að hafa verið hvíldir í leiknum gegn Crystal Palace.

Varamarkvörðurinn Brad Guzan hefur spilað leiki Villa í deildarbikarnum hingað til en hefur ekki þótt sannfærandi í undanförnum leikjum og þykir O‘Neill líklegur til að velja Friedel í rammann í úrslitaleiknum.

Manchester United slógu út Wolves, Barnsley, Tottenham og Man City á leið sinni í úrslitaleikinn á sama tíma og Aston Villa slógu út Cardiff, Sunderland, Portsmouth og Blackburn.

Liðshópar:

Aston Villa: Friedel, Guzan, Cuellar, L Young, Beye, Collins, Dunne, Davies, Warnock, A Young, Milner, Petrov, Sidwell, Delph, Downing, Agbonlahor, Heskey, Carew, Delfouneso.

Manchester United: Van der Sar, Kuszczak, Foster, Rafael, Neville, Brown, Evans, Vidic, De Laet, Evra, Fabio, Valencia, Obertan, Fletcher, Carrick, Scholes, Gibson, Park, Berbatov, Owen, Rooney, Diouf.

Lykilmaður: James Milner - enski landsliðsmaðurinn hefur átt flotta leiktíð á miðjunni hjá Villa.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

Gunnar

28.2.2010 14:42
Bæði Rafael og Darron Gibson misstu af úrslitaleiknum á síðustu leiktíð vegna meiðsla . Darron Gibson spilaði 91 min í urslitaleiknum i fyrra .
2

Daði

28.2.2010 16:07

Fréttin er fengin frá erlendum fréttamiðli, greinilega þá smávægileg villa í henni.

"...Darron Gibson and Rafael - who both missed last year's final through injury - should bring a semblance of youth to the United line-up...."

Það leiðréttist hér með að Gibson spilaði í úrslitaleiknum í fyrra, Giggs kom inná fyrir hann strax í byrjun framlengingar.

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista