Bikarkeppnir
24.2.2010
Rio missir af úrslitaleiknum gegn Villa

Rio Ferdinand mun missa af úrslitaleik enska deildarbikarsins næstkomandi sunnudag þegar Manchester United mætir Aston Villa á Wembley. Hann mun einnig að öllum líkindum missa af landsleik Englendinga og Egypta í næstu viku, en Rio er nýskipaður fyrirliði enska landsliðsins.
Það var búist við því að Rio Ferdinand myndi loksins spila við hlið Nemanja Vidic í gærkvöldi þegar United sigraði West Ham 3-0 á Old Trafford. Vidic og Ferdinand hafa ekki spilað saman í varnarlínu United síðan í október á síðasta ári, en þetta var jafnframt fyrsti leikur Vidic á árinu eftir að hafa jafnað sig á meiðslum í kálfa.
Hinsvegar staðfesti Sir Alex Ferguson að Rio Ferdinand hefði fundið fyrir verkjum í baki á æfingu fyrir leikinn gegn West Ham, en Ferdinand hefur einmitt verið mikið frá á þessari leiktíð vegna bakmeiðsla og jafnframt misst af undanförnum 4 leikjum í deildinni vegna leikbanns.
„Hann fann fyrir verkjum í bakinu á æfingu og hann mun ekki spila á sunnudaginn." sagði Ferguson.
„Þetta er leiðinlegt fyrir hann, hann mun missa af einhverjum leikjum. Hann hefur samt verið að æfa vel. Það hafa ekki verið nein bakslög hvað það varðar. En þegar þú finnur fyrir þessum stingjum í bakinu þá er betra að taka enga áhættu." sagði Ferguson.
Miðjumaðurinn Anderson er einnig tæpur fyrir úrslitaleikinn þar sem hann meiddist í gærkvöldi í leiknum gegn West Ham. Ekki er enn alveg ljóst hversu alvarleg meiðslin eru en miðað við viðbrögð Anderson á vellinum þá virtust meiðslin vera slæm.
„Við höfum sent Anderson í myndatöku. Vonandi er þetta ekki mjög alvarlegt en þetta leit alls ekki vel út." sagði Ferguson að lokum.
- Daði Már














Bæta við athugasemd