Bikarkeppnir
28.1.2010
United setja óeirðaseggina í bann

Manchester United hafa lofað því að hafa uppi á þeim sem köstuðu aðskotahlutum í Craig Bellamy þegar United og City áttust við í Carling Cup bikarnum í gærkvöldi. Langt bann frá leikjum á Old Trafford bíður þeirra áhorfenda sem verða fundnir sekir um athæfið.
Það er talið að lögreglan í Manchester borg hafi núþegar náð að handtaka stuðningsmanninn sem henti flösku í átt að Bellamy í þann mund sem hann ætlaði að taka hornspyrnu í seinni hálfleik.
Leit stendur nú yfir að áhorfandanum sem kastaði smápeningi í Bellamy en hann endaði í hnakka leikmannsins. Edwin van der Sar hljóp strax á vettvang til að forða Bellamy frá því að fá fleiri hluti í sig úr stúkunni meðan hann lá í grasinu.
Video upptökur verða grandskoðaðar af atvikinu til að finna út hvaða óeirðaseggur í stúkunni kastaði peningnum.
United búast við því að lögreglan í Manchester óski eftir því að hver sá sem verður fundinn sekur um athæfið verður settur strax í bann fyrir næsta heimaleik United við Portsmouth þann 6. febrúar næstkomandi.
Hinsvegar, ef svo ólíklega vill til að lögreglan óskar ekki eftir banni á sökudólginn þá munu forráðamenn Manchester United sjálfir banna stuðningsmanninn frá heimaleikjum liðsins um óákveðinn tíma.
Á meðan rannsókn stendur mun enska knattspyrnusambandið fara yfir skýrslu dómarans Howard Webb úr leiknum og skoða öryggisskýrslur United áður en þeir ákveða næsta skref í málinu.
Forráðamenn United óttast að fá sekt vegna atviksins en enska knattspyrnusambandið vill engu að síður athuga hvort öllum öryggisreglum hafi verið framfylgt og munu svo í framhaldinu ákveða hvort sekt á félagið sé við hæfi.
„Um leið og við höfum skoðað skýrslu dómarans og skýrslu félagsins getum við ákveðið hvort við munum bregðast við atvikinu" sagði talsmaður enska knattspyrnusambandsins.
Svipað mál kom upp í fyrri undanúrslitaleik liðanna á City of Manchester Stadium (einnig kallaður Eastlands), en þá fékk Patrice Evra kveikjara í sig úr stúkunni þegar hann var að gera sig kláran í að taka innkast. Minna fór hinsvegar fyrir því atviki þar sem Evra varð ekki meint af kveikjarakastinu.
- Daði Már
Athugasemdir »
haha
GOTT Á ÞENNAN FOKKING HÁLFVITA













Jómi