Beint á leiðarkerfi vefsins

Bikarkeppnir

28.1.2010

Sagt eftir leik: Man Utd - Man City

Sir Alex Ferguson hrósaði Wayne Rooney hástert eftir undanúrslitaleikinn gegn Man City í Carling Cup bikarnum í kvöld og sagði hann framherjann vera í heimsklassa. Rooney skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma og kom liði sínu áfram í úrslitaleikinn á Wembley.

 

Rooney skoraði sigurmarkið á 91. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Ryan Giggs. United munu svo mæta Aston Villa í úrslitaleiknum á Wembley þann 28. febrúar næstkomandi.

Sir Alex Ferguson hrósaði heimsklassa frammistöðu Rooney í leiknum og sagði spilamennsku Rooney betri en þá sem hann sýndi í leiknum gegn Hull City á dögunum, en þá skoraði framherjinn knái 4 mörk.

„Mér fannst hann mun betri í dag en á sunnudaginn." sagði Ferguson himinlifandi.

„Boltatæknin, innsæi hans og skilningur á leiknum var alveg ótrúlegur. Þetta var frábær frammistaða, svo sannarlega í heimsklassa."

Fyrr í leiknum höfðu Paul Scholes og Michael Carrick báðir skorað fyrir United en Tevez tókst að minnka muninn í 2-1 fyrir þá bláklæddu. Þá var staðan samanlagt 3-3 úr báðum leikjunum áður en Rooney innsiglaði 3-1 sigur í leiknum sem þýddi samanlögð úrslit upp á 4-3 fyrir United.

Ferguson hrósaði einnig frammistöðu Darren Fletcher í leiknum og undraði sig á drifkraftinum sem býr í drengnum.

„Fletcher er ótrúlegur. Hann var út um allt. Ég veit ekki hvað hann hefur inn í sér til að knýja sig svona áfram, kannski er hann með tvær vélar. Hann sýndi þroska hvað varðar leikskilning í leiknum í kvöld." sagði Ferguson.

„Þú vilt alltaf vinna grannaslagina. Andrúmsloftið sem skapaðist í kvöld var frábært og sú staðreynd að þetta var undanúrslitaleikur kryddaði það enn meira."

„Við héldum ró okkar og vorum þolinmóðir, það var mjög mikilvægt. Þegar við komumst á síðasta þriðjung vallarins vorum við alltaf ógnandi."

„Það gerðist lítið í fyrri hálfleik þar sem City sátu aftarlega á vellinum. Það sem við sögðum í hálfleik var að halda áfram að spila okkar bolta og halda áfram að reyna að opna þá upp. Leikmennirnir voru svo frábærir í seinni hálfleiknum." sagði Ferguson sem er greinilega mjög stoltur af sínum mönnum.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

Rakel

28.1.2010 09:39
enda var þetta geggjaður seinni hálfleikur hjá strákunum:) og Nani var bara nokkuð góður:)
2

Jómi

28.1.2010 14:51
Rooney átti mjög góðan leik sem og allir aðrir í liðinu. Edwin van der Sar átti t.d. frábæra markvörslu þegar hann varði flott skot frá Micah Richards.

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista