Beint á leiðarkerfi vefsins

Bikarkeppnir

30.1.2012

Stuðningsmaður Liverpool handtekinn fyrir meintan kynþáttaníð

Lögreglan í Liverpool hefur handtekið 59 ára stuðningsmann liðsins fyrir að hafa hæðst að Patrice Evra og leikið apa þegar leikmaðurinn var nærri og með boltann. Myndir náðust af manninum og komst lögreglan þannig á sporið.

 

"Lögreglan í Merseyside staðfestir að hún hefur handtekið 59 ára gamlan mann frá Norður Wales í kvöld (laugardag) eftir atvik sem átti sér stað í stúkunni í leik Liverpool og Manchester United. Maðurinn hefur verið færður á lögreglustöðina í yfirheyrslu. Lögreglan vill þakka kollegum sínum í Norður Wales og knattspyrnufélaginu Liverpool fyrir aðstoðina." stóð í yfirlýsingu lögreglunnar.

Þetta var fyrsti leikur liðanna eftir 8 leikja bann Luis Suarez sem var dæmdur fyrir kynþáttaníð í garð Patrice Evra þegar liðin mættust í október 2011. Fyrir leik varaði vallarþulurinn áhorfendur við því að vera með kynþáttaníð í stúkunni og svoleiðis hegðun yrði ekki liðin.

- Daði Már

Athugasemdir »

1

heiddit

30.1.2012 06:46
Þessir Liverpool menn ætla að verða sér endalaust til skammar .... þeim líkt :)
2

Aron

30.1.2012 10:55
Ég myndi fara rólega í að dæma alla eftir verknað nokkurra. Gaman að sjá að kauði var handtekinn sem sýnir að þeir ætla sér augljóslega að taka á þessu, enda þurfa þeir að bæta upp fyrir atkvikið þegar leikmennirnir klæddust Suarez bolum sem var bæði barnalegt og ófagmannlegt. Ég efast það stórlega að það verði eitthvert kynþáttaníð á Old Trafford en við skulum sjá hvernig Suarez mun höndla ca. 70.000 manns sem baula og öskra til hans, kannski missir hann skapið og lætur reka sig útaf :) Besta hefndin væri samt að yfirspila þá og vinna öruggan sigur og hlusta svo á íþróttafréttir hjá Hödda Magg "Liverpool voru niðurlægðir á Old Trafford í dag", getum við spólað áfram á 11. feb? GGMU
3

Aron

30.1.2012 14:07
Það er þó annað sem vekur upp spurningar þegar myndin er skoðuð nánar. Hvað sjáum við á myndinni? Það er fullt af fólki á öllum aldri. Sá sem er að leika sjálfan sig til að pirra Evra er 59 ára gamall, hvítur maður sem er að öllum líkindum hluti af lágstéttinni eða miðstéttinni. Miðað við aldur hans þá var hann 14 ára þegar Martin Luther King hélt sína frægu ræðu um "drauma" sína í baráttunni gegn kynþáttahatri og misrétti. Foreldrar þessa manns voru kannski með kynþáttafordóma og það að hann þori að standa upp í stúkunni á meðal þúsunda og leika apa segir mér að svo er og var. Hann hefur eflaust ekki gleymt viðhorfum foreldra sinna sem skína í gegnum verknaðinn. En það sem er verst er ekki endilega maðurinn á myndinni heldur hinir á myndinni. Það sýnir enginn viðbrögð! En maður skal passa sig á því að dæma alla því við vitum ekki hvað þau eru að hugsa, kannski eru þau hneyksluð en þora ekki að mæta þessum hlunk eða Park er búinn að skora og þau hata Evra fyrir heimskuleg mistök Suarez og ákveða að gera ekkert því þau þora ekki sjálf að standa upp (en langar) og haga sér eins og apar. Hver veit? Það versta að mínu mati á þessari mynd er ekki górillan heldur fólkið sem gerir ekki neitt til þess að minna hann á að hann er að niðurlægja klúbbinn sem þau styðja! Í baráttunni gegn kynþáttafordómum í fótbolta, og almennt, skipta viðbrögð okkar máli gegn þeim sem eru með fordóma ekki þögnin!! Einstaklega slæm ljósmynd en maður verður að hrósa ljósmyndaranum fyrir að hafa fest þetta atvik á filmu.
4

millinn

30.1.2012 22:42
hvernig verður uppstilling á morgum
5

kallin

31.1.2012 20:33
mér sýnist nær allir hinir vera að horfa á leikinn

Bæta við athugasemd

Öryggistala

Skráðu þig á póstlista