Beint á leiðarkerfi vefsins

Bikarkeppnir

30.1.2012

Stuðningsmaður Liverpool handtekinn fyrir meintan kynþáttaníð

Lögreglan í Liverpool hefur handtekið 59 ára stuðningsmann liðsins fyrir að hafa hæðst að Patrice Evra og leikið apa þegar leikmaðurinn var nærri og með boltann. Myndir náðust af manninum og komst lögreglan þannig á sporið.

29.1.2012

Ferguson: Skil ekki hvernig við töpuðum

Sir Alex Ferguson segir Manchester United hafa leikið skínandi vel gegn Liverpool í enska bikurkeppninni á Anfield í gær. Hann skilji hreinlega ekki hvernig liðinu tókst að tapa leiknum 2-1.

28.1.2012

Liverpool 2 - ManUtd 1

Liverpool sló Manchester United út úr FA bikarnum í dag á Anfield. Daniel Agger kom Liverpool yfir í fyrri hálfleik en United jafnaði leikinn með marki frá Ji-Sung Park. Dirk Kuyt skoraði svo sigurmarkið þremur mínútum fyrir leikslok.

19.1.2012

Unglingaliðið komið áfram í FA Youth Cup

Sir Alex Ferguson ítrekar það fyrir ungum leikmönnum í akademíunni að vera þolinmóðir. Unglingalið United varð FA Youth Cup bikarmeistarar í fyrra og er liðið nú komið í fimmtu umferð keppninnar í ár eftir að hafa sigrað Derby County 2-1 í gær. Ferguson var í stúkunni og fylgdist með ungu strákunum en liðið er skipað allt öðrum leikmönnum en í fyrra.

8.1.2012

ManCity 2 - ManUtd 3

Manchester United slógu erkifjendur sína í Man City út úr 64-liða úrslitum FA bikarkeppninnar í dag. United var 3-0 yfir í leikhléi eftir tvö mörk frá Rooney og eitt frá Welbeck en City menn minnkuðu muninn í seinni hálfleik þrátt fyrir að vera manni færri.

8.1.2012

Byrjunarlið Manchester United - Scholes á bekknum

Manchester United mætir erkióvinunum í City á Etihad vellinum í Manchester klukkan 13:00 í dag. Leikurinn verður eflaust mjög harður en mesta athyglin beinist þó að Paul Scholes sem er sestur á bekkinn hjá United. Hér fyrir neðan eru byrjunarlið liðanna.

Útgefandi HólabókSkráðu þig á póstlista