Beint á leiðarkerfi vefsins

Bikarkeppnir

3.6.2010

Skráðu þig í golfmót Manchester United klúbbsins

Kæri Man UTD stuðningsmaður...
...skráning að hefjast í eitt skemmtilegasta golfmót ársins!

26.4.2010

Fletcher: Munum ekki örvænta

Darren Fletcher er viss um að leikmenn United muni halda ró sinni í lokaumferðum deildarinnar. Chelsea vann sinn leik í gær og eru aftur komnir á toppinn með einu stigi meira en United þegar tvær umferðir eru eftir. Þeir bláklæddu mæta Liverpool á Anfield í næstu umferð á meðan United sækir Sunderland heim.

1.4.2010

Fletcer að öllum líkindum til Barcelona

Samningaviðræður Darren Fletcher við forráðamenn United hafa siglt í strand og er leikmaðurinn sagður mjög óánægður með þann samning sem er á borðinu. United segjast ekki geta gefið leikmanninum hærri laun þar sem félagið hafi ekki svigrúm til þess vegna skulda. Barcelona hafa blandað sér í leikinn og ætla sér að klófesta miðjumanninn.

24.3.2010

Stjórnandi segir Glazer standa undir væntingum

Markaðsstjóri Manchester United, Richard Arnold, tekur ekki undir málstað þeirra sem vilja að Glazer fjölskyldan gefi frá sér félagið sem fyrst. Hann segir miklar framfarir hafa orðið í markaðssetningu félagsins undanfarin ár og tekjur af henni stóraukist.

28.2.2010

Aston Villa 1 - Man Utd 2

Manchester United urðu í dag enskir deildar- bikarmeistarar eftir góðan 2-1 sigur á Aston Villa á Wembley leikvanginum. Michael Owen og Wayne Rooney sáu um markaskorun United eftir að James Milner hafði komið Aston Villa yfir strax í upphafi leiks með marki úr vítaspyrnu.

27.2.2010

Upphitun: Aston Villa - Man Utd

Manchester United hefur aldrei áður tekist að verja bikarkeppnis- titil. Þeir mæta Aston Villa á Wembley á morgun í úrslitaleik enska deildarbikarsins. United sigruðu Tottenham í þessari sömu keppni á síðustu leiktíð eftir dramatíska vítaspyrnukeppni. Það þýðir því að rauðu djöflarnir verða að breyta sögunni til að hampa titlinum aftur í ár.

Skráðu þig á póstlista